Flugger
Flugger

Fréttir

Skólastarf á mánudag í leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, Garði og Vogum -  þriðjudag í Sandgerði
Sunnudagur 11. febrúar 2024 kl. 20:20

Skólastarf á mánudag í leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, Garði og Vogum - þriðjudag í Sandgerði

Að öllu óbreyttu verður skólastarf í öllum leik- og grunnskólum í Reykjanesbæ, Garði og Vogum á morgun mánudaginn 12. febrúar. Þetta á einnig við um starfsemi frístundaheimila. Þess má geta að skipulagt íþróttastarf hjá börnum og ungmennum fellur niður. Skólastarf hefst á þriðjudag í Sandgerði.

Vel gengur að koma og halda hita á skólabyggingum en starfsfólk sveitarfélaganna og aðgerðastjórn Suðurnesja hafa nýtt helgina til að koma fyrir hitablásurum í allar byggingar.

Staðan verður tekin reglulega og upplýsingar verða sendar frá skólastjórnendum til foreldra/forráðamanna ef gera þarf breytingar og aðlaga skólastarf að þeim.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Skólastarf fellur niður á morgun mánudag í Sandgerðisskóla og í Heilsuleikskólanum Sólborg í Suðurnesjabæ vegna vandræða við uppsetningu á búnaði til hitunar. Stefnt er að opnun þeirra frá og með þriðjudeginum 13.febrúar.