Skaðlegur póstur sendur út í nafni Brunavarna Suðurnesja
Brunavarnir Suðurnesja hafa sent frá sér áríðandi viðvörun til almennings vegna tölvupósta sem nú eru í dreifingu í nafni stofnunarinnar. Póstarnir eru falsaðir og innihalda vírus eða annað skaðlegt efni sem getur valdið tjóni á tölvubúnaði þeirra sem opna þá.
Stofnunin brýnir fyrir fólki að opna alls ekki viðhengi eða smella á tengla ef það fær grunsamlegan póst sem virðist koma frá Brunavörnum Suðurnesja. Þess í stað er fólk hvatt til þess að eyða póstinum tafarlaust. Unnið er að greiningu á málinu og leggja forsvarsmenn áherslu á að tekið sé á þessu öryggisbroti af mikilli alvöru.
Í tilkynningu er beðist velvirðingar á þeim óþægindum sem þessi herferð kann að valda og eru íbúum og samstarfsaðilum þakkað fyrir sýndan skilning á meðan unnið er að lausn málsins.





