Ásrún Helga leiðir lista Framsóknar í Grindavík
Framboðslisti Framsóknar í Grindavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 16. maí næstkomandi var samþykktur samhljóða á fjölmennum félagsfundi í menningarhúsinu Kvikunni í gærkvöldi. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar og grunnskólakennari, leiðir listann sem skipaður er fólki úr ýmsum áttum samfélagsins.
Ásrún Helga sagði á fundinum að það væri sér mikill heiður að fá að leiða svo öflugan hóp einstaklinga sem búa yfir ólíkum bakgrunni, reynslu og styrkleikum. Hún lagði áherslu á að hópinn sameinaði sterk trú á framtíð Grindavíkur og einlægur vilji til að leggja sitt af mörkum til samfélagsins á þessum mikilvægu tímum.
Í öðru sæti listans er Þorleifur Ólafsson, þjálfari og kennari, og í því þriðja er Inga Fanney Rúnarsdóttir, bæjarfulltrúi og ráðgjafi á velferðarsviði. Fast á hæla þeirra fylgja Elínborg Ingvarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur, og Benedikt Óskar Steingrímsson jarðfræðingur.
Listinn er skipaður fjórtán einstaklingum og endurspeglar breiddina í bæjarfélaginu, en þar má finna allt frá sérfræðingum í velferðarmálum og tölvunarfræði yfir í starfsfólk skóla og iðnaðarmenn. Athygli vekur að Siggeir Fannar Ævarsson, formaður Samfylkingarinnar í Grindavík, skipar 11. sæti listans.
Framboðslisti Framsóknar í heild sinni:
- 1. Ásrún Helga Kristinsdóttir, forseti bæjarstjórnar og grunnskólakennari
- 2. Þorleifur Ólafsson, þjálfari, kennari og nemi
- 3. Inga Fanney Rúnarsdóttir, bæjarfulltrúi og ráðgjafi á velferðasviði
- 4. Elínborg Ingvarsdóttir, tómstunda- og félagsmálafræðingur og umsjónarmaður ungmennaráðs Grindavíkurbæjar
- 5. Benedikt Óskar Steingrímsson, jarðfræðingur
- 6. Valgerður Ágústsdóttir, félagsráðgjafi MA
- 7. Jón Fannar Sigurðsson, stuðningsfulltrúi
- 8. Valgerður Jennýjar, leikskólaliði
- 9. Ása Björg Einarsdóttir, stuðningsfulltrúi og verðandi nemi í uppeldis- og menntunarfræði
- 10. Helgi Gylfason, tölvunarfræðingur
- 11. Siggeir Fannar Ævarsson, formaður Samfylkingarinnar í Grindavík
- 12. Bergur Hinriksson, rafvirki
- 13. Bríet Rose Raysdóttir, leikskólastarfsmaður
- 14. Guðmundur Grétar Karlsson, framhaldsskólakennari




