Breytingar og bætt umferðaröryggi við Keflavíkurflugvöll
Framkvæmdir hefjast í dag við veginn norðanmegin við flugstöð Keflavíkurflugvallar, nánar tiltekið veginn sem liggur á milli flugstöðvarbyggingarinnar og langtímastæða á svæðinu (P3). Samtímis verður sú breyting á að hluti vegarins verður að einstefnu. Með þeirri breytingu eykst öryggi vegfarenda á svæðinu, hvort sem þeir eru gangandi, hjólandi eða akandi og betra flæði skapast. Framkvæmdirnar eru hluti af frekari breytingum sem fram undan eru á aðkomusvæði flugvallarins í þessum tilgangi.
„Breytingin er liður í því að auka öryggi þeirra sem um flugvallarsvæðið fara, en það hefur verið eitt af okkar forgangsmálum. Einstefnan sem nú tekur gildi er liður í stærri breytingum en með henni drögum við úr tvístefnu og umferð næst flugstöðinni og bætum um leið flæði umferðar á svæðinu, ” segir Maren Lind Másdóttir, framkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli.
Þegar ekið er út af langtímabílastæðum (P3) við flugstöðina er eftir sem áður hægt að beygja í báðar áttir en eftir það tekur við einstefna til austurs og síðan norður um nýlegan vegkafla, út af flugvallarsvæðinu. Þetta þýðir að ökutæki sem koma af bílastæðasvæðinu komu megin (P2) sem og rútur á innri og ytri stæðum geta eingöngu beygt til austurs og ekið þannig af flugvallarsvæðinu. Nýi vegkaflinn sem áður var tekinn í notkun skapaði möguleikann á nýrri leið út af flugvallarsvæðinu og gerir einstefnuna mögulega.
Góð aðkoma að Keflavíkurflugvelli er mikilvæg öllum sem um flugvöllinn fara og framkvæmdir við hana eru hluti af heildar uppbyggingu Keflavíkurflugvallar. Sérstök uppbyggingaráætlun um aðkomusvæðið var samþykkt af stjórn Isavia haustið 2022 og tekur mið af þörfum og markmiði um bætta upplifun farþega. Stóru markmiðin eru að bæta ásýnd og upplifun við aðkomu að flugvellinum, bæta flæði og auka skilvirkni samgöngukerfisins.





