Fréttir

Samkaup lækka verð af yfir 400 vörunúmerum
Fimmtudagur 1. september 2022 kl. 15:15

Samkaup lækka verð af yfir 400 vörunúmerum

Fagna frumkvæði verslana og kalla eftir aukum viðbrögðum frá birgjum, framleiðendum og hinu opinbera.

Samkaup hafa lækkað verð á yfir 400 vörunúmerum undir vörumerkjum Änglamark og lágvörumerkinu X-tra í öllum verslunum sínum og bjóða viðskiptavinum upp á sambærilegt verð eða lægra en það var í upphafi árs. Um ræðir 10% verðlækkun á vörunúmerunum sem þegar hefur tekið gildi og kemur til með að haldast a.m.k. óbreytt fram til áramóta. Með þessum lækkunum er markmiðið að sporna gegn áhrifum verðbólgu á dagleg innkaup landsmanna.

„Við hjá Samkaupum höfum lagt allt kapp á að berjast gegn hækkunum á vöruverði og tekist að halda hækkunum í lágmarki til að mynda með innflutningi á vörumerkjum eins og Änglamark og X-tra. Þetta þýðir að verðlækkanirnar sem tóku gildi á mánudaginn eru verulegar. Við bjóðum viðskiptavinum okkar því sama verð eða lægra en það var í upphafi árs. Við höfum verið að fá gríðarlegar verðhækkanir til okkar frá framleiðendum hér heima og birgjum, margar teljum við óþarfar og að okkar mati hefur verið of auðvelt fyrir þessa aðila að velta öllum hækkunum út í verðið. Það skrifast á litla samkeppni, sterka stöðu fárra stórra birgja og verndartolla á íslenskri framleiðslu, t.a.m. á mjólk og kjöti,” segir Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaupa.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ítrekað kallað eftir viðbrögðum frá birgjum og samstarfsaðilum

Síðastliðið haust sendi Samkaup frá sér bréf á alla sína birgja og samstarfsaðila þar sem kallað var eftir samstarfi til að spyrna gegn hækkunum í vöruverði án nokkurra undirtekta. Í lok sumars sendi félagið aftur bréf á tíu stærstu birgja Samkaupa þar sem óskað var eftir 5% verðlækkun til áramóta sem þá gætu skilað sér beint til viðskiptavina, með tilliti til þess að heimsmarkaðsverð fer lækkandi og sömuleiðis stór hluti þeirra vara sem Samkaup flytur inn til landsins, einnig án nokkurs árangurs.

„Við furðum okkur á þessu og ekki síður á aðgerðaleysi hins opinbera, óbreyttum álögum á bensíni og að ekki sé afnuminn virðisauki á lykildagvöru, til að mynda á bleium og barnamat til að koma til móts við ungar barnafjölskyldur. Við fögnum þeim sem hafa tekið af skarið og fryst eða lækkað verð og höldum áfram að kalla eftir viðbrögðum birgja, framleiðenda og ekki síður hins opinbera,” segir Gunnar Egill.

Samkaup reka yfir sextíu versl­an­ir sem staðsettar eru víðsvegar um landið und­ir vörumerkj­un­um Nettó, Kram­búðin, Kjör­búðin og Ice­land.