Rafmagnslaust í Grindavík í gær í sjö klukkutíma
Bilun kom upp í gær í rafmagnsstreng sem liggur til Grindavíkur og var rafmagnslaust í bænum að þeim sökum í rúma sjö klukkutíma.
Að sögn Sigrúnar Ingu Ævarsdóttur hjá HS veitum, kom bilunin upp í streng sem liggur neðan jarðar en hvað orsakaði bilunina er ekki vitað og er verið að reyna komast að orsökinni. Þó er vitað að bilunin varð ekki vegna hnjasks af vél ofan jarðar. Bilunin varð rúmlega tvö í gærdag og var viðgerð lokið kl. 21:17.
Mikið hefur gengið á þessu svæði og m.a. hefur þurft að færa strengi vegna gerðar varnargarða auk þess sem hraunflæði á svæðinu hefur sett strik í reikninginn.
Þegar bilanir koma upp eru slík tilvik skoðuð með tilliti til þess hvort eitthvað hefði betur mátt fara, á það líka við í þessu tilviki.