Fréttir

Óska eftir tilnefningum um jólahús og jólafyrirtæki
Sunnudagur 29. nóvember 2026 kl. 06:58

Óska eftir tilnefningum um jólahús og jólafyrirtæki

Tekið verður við tilnefningum um jólahús og jólafyrirtæki Reykjanesbæjar dagana 1.–15. desember á vef bæjarins. Leikurinn er á vegum Reykjanesbæjar og Húsasmiðjunnar og er haldinn árlega.

Íþrótta-, tómstunda- og menningarráð hvetur íbúa til að svipast um eftir fallega skreyttum húsum og fyrirtækjum og senda inn tilnefningar. Með leiknum er vakin athygli á jólaskreytingum í bænum og þeim veitt viðurkenning sem leggja metnað í að skapa jólastemningu í nærumhverfi sínu.

Ráðið fagnaði jafnframt jóladagskrá bæjarins og lagði áherslu á að íbúar á öllum aldri hefðu tækifæri til að koma saman og taka þátt í menningarlífinu á aðventunni.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk
HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100