Bæjarráð samþykkir samkomulag um öryggismyndavélar
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt samkomulag við lögreglustjórann á Suðurnesjum og Korda ehf. um kaup, uppsetningu og rekstur öryggismyndavélakerfis í sveitarfélaginu. Bæjarstjóra var falið að undirrita samkomulagið fyrir hönd bæjarins.
Samkomulaginu er ætlað að skýra ábyrgð og hlutverk aðilanna við uppbyggingu og rekstur kerfisins og meðferð gagna úr því. Samkvæmt fundargerð er kerfinu ætlað að styðja við störf lögreglu og annarra neyðaraðila og efla forvarnir.
Staðsetning myndavélanna, kostnaður við kerfið og tímasetning uppsetningar koma ekki fram í fundargerðinni.





