Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Undirbúa endurbætur á Litla Róló í Vogum
Sunnudagur 29. nóvember 2026 kl. 05:46

Undirbúa endurbætur á Litla Róló í Vogum

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt að unnið verði áfram að útfærslu endurbóta á leiksvæði undir vinnuheitinu Litli Róló. Áhersla er lögð á að þar verði náttúrulegt og aðgengilegt leik- og dvalarsvæði fyrir yngstu börnin.

Tillagan var samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum. Umhverfis- og skipulagssvið mun vinna hana áfram, meðal annars í samráði við Skógræktarfélagið, og leggja fram nánari útfærslu, kostnaðaráætlun og mögulega áfangaskiptingu.

Áformin eru hluti af víðtækari yfirferð á grænum svæðum og leiksvæðum í þéttbýli Voga. Umhverfis- og skipulagsnefnd fól sviðinu í september að meta ástand svæðanna, nýtingu þeirra og möguleika til úrbóta.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Nefndin hefur lagt áherslu á öryggi, aðgengi, nýtingu og bætta ásýnd svæðanna. Jafnframt hefur hún falið sviðinu að vinna áfram að forgangsröðun úrbóta á öðrum grænum svæðum og kanna, eftir því sem við á, möguleika á heildstæðara framtíðarskipulagi þeirra. Niðurstöðurnar verða lagðar fyrir nefndina til frekari umfjöllunar.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100