Kvikusöfnun í silluna norðvestur af Þorbirni hraðari en áður
– stutt í að dragi til tíðinda á nýjan leik í jarðhræringum
Nú þegar átta sólarhringar eru liðnir frá miklum náttúruhamförum í og við Grindavík bólar ekkert á eldgosi. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands fjallar um málið í færslu í kvöld þar sem segir að engu að síður sé það mat jarðvísindafólks að miklar líkur séu á eldgosi, þó mikil óvissa ríki um hvenær það gæti byrjað.
„Mikið hefur dregið úr hraða aðlögunar. Skjálftavirkni hefur haldist stöðug síðustu daga, en þó virðist töluvert hafa dregið úr fjölda skjálfta síðasta sólarhringinn. Land heldur áfram að síga í Grindavík en þó með minni hraða. Líklegasti eldsuppkomustaðurinn er við Hagafell norðan Grindavíkur,“ segir í færslunni.
Þá segir hópurinn: „Aðstæður núna þykja svipa verulega til þess er gosið í Geldingadölum hófst í mars 2021. Innskot undir Fagradalsfjalli hafði þá verið að vinna sér leið upp á yfirborðið í þrjár vikur áður en hún náði upp. Síðustu dagana fyrir eldgos hafði dregið verulega úr skjálftavirkni, auk þess sem að aflögun á yfirborði hafði nánast stöðvast. Var því jafnvel spáð stuttu fyrir gosið að þeim atburði væri að ljúka án þess að til eldgoss kæmi, eins og frægt var.“
Í aðdraganda atburðarins föstudaginn 10. nóvember þegar kvikugangurinn myndaðist m.a. undir byggðinni í Grindavík voru allra augu á landrisi norðvestur af Þorbirni. Landris virðist hafið á nýja leik yfir sillunni sem myndast hefur norðan og vestan Þorbjarnar.
„Land seig þar mikið á föstudeginum sem innskotið myndaðist við Grindavík GPS mælar við Eldvörp, Skipastígahraun og Svartsengi sýna nú að land hefur síðustu vikuna risið mun hraðar en áður en innskotið varð - allt að 15 mm á dag. Má því vera að kvikusöfnun í silluna sé hraðari en áður og að stutt verði í það dragi til tíðinda á nýjan leik í jarðhræringum, óháð því hvort það gjósi núna eða ekki,“ segir Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands.