Flugger
Flugger

Fréttir

Knarrarneskirkja hlaut umhverfisviðurkenningu Voga 2023
Sunnudagur 17. september 2023 kl. 04:30

Knarrarneskirkja hlaut umhverfisviðurkenningu Voga 2023

Knarrarneskirkja er reist af hjónunum Birgi Þórarinssyni og Önnu Rut Sverrisdóttur, ábúendum á Minna-Knarrarnesi. Kirkjan er heimiliskirkja. Hún var vígð af Karli Sigurbjörnssyni, biskup, 8. ágúst 2021. Biskup Íslands, Agnes M Sigurðardóttir, setti kirkjunni máldaga og tilheyrir kirkjan Þjóðkirkjunni þó hún sé í einkaeigu. Helgihald og kirkjulegar athafnir fylgja reglum Þjóðkirkjunnar.

Kirkjan er byggð í 19. aldar stíl. Arkitekt er Óli Jóhann Ásmundsson og yfirsmiður var Ásgeir Þórisson, Reykjanesbæ. Ólafur Sigurjónsson, Forsæti Flóahreppi, smíðaði innréttingar og sáluhlið. Umhverfis kirkjuna er hlaðinn tvöfaldur steinveggur úr grjóti. Birgir Þórarinsson hlóð vegginn. Allir listmunir kirkjunnar eru gerðir af tveimur Úkraínskum kirkjulistamönnum, þeim Andrii Kovalenko, listmálara, og Mykhailo Kozyr, útskurðarmeistara.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Í viðurkenningu umhverfisnefndar Sveitarfélagsins Voga segir: „Einstaklega falleg kirkja í 19. aldar stíl, sem prýðir jörðina að Minna-Knarrarnesi en þar er snyrtimennska til fyrirmyndar í alla staði. Umhverfisnefnd óskar hjónunum að Minna-Knarrarnesi innilega til hamingju með þetta einstaka framtak og þakkar fyrir þær ábendingar sem nefndinni bárust.“