Fréttir

Hröð og markviss vinnubrögð í uppbyggingu á gervigrasvelli
Mánudagur 19. september 2022 kl. 10:30

Hröð og markviss vinnubrögð í uppbyggingu á gervigrasvelli

„Bæjarlistinn leggur áherslu á hröð og markviss vinnubrögð í uppbyggingu á gervigrasvelli. Vinnsluferill málsins var lagður fyrir í bæjarráði þann 20.6.2022 þar sem tekið var fram að ekki væri hægt að tímasetja hann nákvæmlega vegna sumarfría starfsmanna en gert ráð fyrir að honum væri lokið í september. Nú er einungis einum lið af fimm lokið af vinnsluferlinu og hefur Bæjarlistinn áhyggjur af því að þessar tafir leiði til þess að ekki verið komin ákvörðun um verkið þegar fjárhagsáætlunarvinna hefst og því muni framkvæmdir tefjast enn frekar.

Bæjarlistinn hvetur meirihlutann til að hraða vinnsluferlinu og setja málið í forgang,“ segir í bókun fulltrúa O-listans á síðasta fundi bæjarstjórnar Suðurnesjabæjar.

Public deli
Public deli