Hjallastefnan hættir með tvo leikskóla í Reykjanesbæ
Frá árinu 2007 hefur Hjallastefnan séð um rekstur leikskólanna Akurs og Vallar með þjónustusamningum við Reykjanesbæ. Nú hefur Hjallastefnan tekið þá ákvörðun að segja upp þessum samningum frá og með 1. desember 2025. Reykjanesbær mun taka yfir reksturinn. Þetta kemur fram á heimasíðu bæjarins.
Rekstur leikskólans Akurs færist yfir til Sigrúnar Gyðu Matthíasdóttur, núverandi leikskólastýru, frá og með 1. ágúst 2025. Ekki er gert ráð fyrir breytingum á daglegu skólastarfi sem börn og foreldrar verða vör við.
Reykjanesbær mun taka við rekstri leikskólans Vallar frá 1. október 2025. Skólinn verður rekinn í samræmi við aðra leikskóla sveitarfélagsins og lögð verður áhersla á faglega og vel skipulagða yfirfærslu í náinni samvinnu við Hjallastefnuna, stjórnendur og starfsfólk leikskólans. Hulda Björk Stefánsdóttir leikskólastýra á Velli mun áfram leiða skólastarfið.
„Þegar horft er til hagsmuna barna og barnafjölskyldna er það sameiginleg sýn aðila, að í kjölfar þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á samfélagi sveitarfélagsins, að rekstur fjölmenningarskóla líkt og Völlur er sé í höndum Reykjanesbæjar. Reykjanesbær leggur ríka áherslu á skýra upplýsingagjöf til starfsfólks, foreldra og annarra hagsmunaaðila varðandi næstu skref. Markmið sveitarfélagsins er að tryggja stöðugleika í skólastarfinu og velferð barnanna sem sækja leikskólana,“ segir í frétt frá Reykjanesbæ.