Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Fréttir

Hirðing jólatrjáa í boði í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ
Mynd af vef Reykjanesbæjar.
Þriðjudagur 5. janúar 2021 kl. 16:24

Hirðing jólatrjáa í boði í Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ

Reykjanesbær býður upp á hirðingu jólatrjáa frá íbúum og kemur þeim til förgunar dagana 5. janúar til og með 11. janúar. Hringja þarf í síma 420 3200 og óska eftir þjónustunni. Íbúar þurfa að setja jólatrén út fyrir lóðamörk með jólatrjám nágranna ef kostur er og huga vel að frágangi þannig að trén fjúki ekki eða valdi ónæði.

Íbúar geta einnig losað sig við jólatré í Kölku sem er opin frá klukkan 10:00 til 18:00 alla virka daga og frá klukkan 11:00 til 16:00 á laugardögum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hirðing jólatrjáa í Suðurnesjabæ

Dagana 4. - 7. janúar munu starfsmenn Þjónustumiðstöðvar Suðurnesjabæjar annast hirðingu jólatrjáa í bænum.  þeir sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamlega beðnir um að setja jólatrén út fyrir lóðarmörk. Einnig er hægt að koma trjám á losunarstaði fyrir garðaúrgang ofan við Háteig í Garði og í gryfjunni ofan Byggðavegar í Sandgerði.