Grindavíkurbær auglýsir íbúðir til leigu
Grindavíkurbær auglýsir íbúðir í eigu sveitarfélagsins til leigu. Á vef bæjarins kemur fram að umsóknarfrestur sé til 10. júlí 2025 og opið sé fyrir umsóknir í gegnum íbúagátt Grindavíkurbæjar.
Í frétt á vef bæjarins kemur fram að umsækjandi sem hafði leigusamningi að tilktekinni íbúð 10. nóv. 2023 njóti forgangs en auk fleiri þátta sem þurfi að huga að:
- Hvort umsækjandi hafi átt lögheimili í Grindavík 10. nóvember 2023.
- Hvort umsækjandi falli undir tekju- og eignamörk.
- Hvort umsækjandi hafi átt húsnæði í Grindavík sem nú er óíbúðarhæft vegna jarðhræringa.
Ef fleiri en einn uppfyllir ofangreind skilyrði fyrir sömu íbúð, sker hlutkesti úr um hver fær úthlutað íbúðinni. Umsækjendur geta sótt um fleiri en eina íbúð.
Ef enginn umsækjandi uppfyllir ofangreint verður íbúðunum úthlutað til annarra umsækjenda.
Viðmiðunarupphæðir tekju- og eignamarka vegna félagslegra leiguíbúða
Frá og með 1. Janúar 2025 eru uppreiknuð tekju- og eignamörk leigjenda slíkra félagslegra leiguíbúða (skv. 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um húsnæðismál) eftirfarandi:
- Árstekjur einstaklings: 7.485.000 kr.
- Árstekjur fyrir hvert barn að 20 ára aldri sem býr á heimilinu: 1.872.000 kr.
- Árstekjur fyrir hjón og sambúðarfólk: 10.480.000 kr.
- Eignamörk: 8.079.000 kr.