Fréttir

Framkvæmdir við gatnagerð í Vogum hafnar
Mánudagur 15. maí 2017 kl. 06:00

Framkvæmdir við gatnagerð í Vogum hafnar

-Forseti bæjarstjórnar tók fyrstu skóflustunguna

Hafnar eru framkvæmdir við gatnagerð á miðbæjarsvæðinu í Vogum, en samið var við Jón og Margeir ehf. í Grindavík. Mörg ár eru síðan síðast var unnið að gatnagerð nýs hverfis í Vogunum. Ingþór Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, tók fyrstu skóflustunguna. Að henni lokinni tók hann einnig fyrstu skóflustunguna í gröfu, en Ingþór hefur meðal annars réttindi á stórvirkum vinnuvélum. Verklokin verða seint í sumar og lóðum undir einbýlishús, parhús og fjölbýlishús úthlutað.

Myndband frá Facebook síðu Sveitarfélagsins Voga af fyrstu skóflustungunni má sjá hér fyrir neðan.

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024