Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fréttir

Formaður bæjarráðs krefst fundar með forsætisráðherra: „Hjá mér er mælirinn fullur“
Fimmtudagur 16. apríl 2026 kl. 16:42

Formaður bæjarráðs krefst fundar með forsætisráðherra: „Hjá mér er mælirinn fullur“

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, segist vera orðlaus yfir þeirri frétt að stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja (FS) sé komin á ís. Hún hefur óskað eftir fundi með forsætisráðherra og þingmönnum kjördæmisins vegna málsins.

Í harðorðri færslu á samfélagsmiðlum lýsir Halldóra yfir þungum áhyggjum af stöðu skólans, en tilefnið er uppsögn Kristjáns Ásmundssonar skólameistara sem hún segir hafa fengið nóg af aðgerðaleysi stjórnvalda. „Það eru sorglegar fréttir fyrir skólann og samfélagið okkar,“ segir Halldóra.

Bærinn búinn að samþykkja sinn hlut

Halldóra bendir á að bæjarstjórn Reykjanesbæjar hafi fyrir löngu síðan samþykkt sinn þátt í fjármögnun uppbyggingarinnar og gengið frá nauðsynlegu skipulagi. Þrátt fyrir það hafi ekkert heyrst frá stjórnvöldum sem hún segir hafa dregið lappirnar svo furðu sæti.

Nesraf
Nesraf

„Hjá mér er mælirinn fullur! Það er okkar allra að gæta hagsmuna nemenda og tryggja góða aðstöðu og eðlilega uppbyggingu,“ skrifar Halldóra.

Kallað eftir neyðarfundum

Auk þess að óska eftir fundi með forsætisráðherra og þingmönnum Suðurkjördæmis ætlar Halldóra að leggja til að bæjarstjórn Reykjanesbæjar fundi sérstaklega um stöðuna. Þá óskar hún þess einnig að stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) taki málið fyrir á sínum borðum.

Hún minnir á að þótt framhaldsskólarnir séu á ábyrgð stjórnvalda sé það hlutverk kjörinna fulltrúa á svæðinu að gæta hagsmuna bæjarbúa. „Við þetta verður ekki unað stundinni lengur,“ segir Halldóra að lokum.