Bygg
Bygg

Fréttir

Fjölmennasta útskrift í sögu Fjölbrautaskólans
Laugardagur 31. maí 2025 kl. 06:15

Fjölmennasta útskrift í sögu Fjölbrautaskólans

Ísabella Matthíasdóttir dúx á vorönn með 9,69 í meðaleinkunn

Ísabella Auður Nótt Matthíasdóttir var með hæstu einkunn við útskrift á haustönn í Fjölbrautaskóla en skólaslit fóru fram síðasta föstudag. Ísabella var með 9,69 í meðaleinkunn. Útskriftin að þessu sinni sú fjölmennasta í sögu skólans en alls útskrifuðust 167 nemendur.

Ísabella Auður Nótt Matthíasdóttir, dúx á vorönn FS. Myndir/Oddgeir Karlsson.

Skólaslit vorannar og brautskráning Fjölbrautaskóla Suðurnesja fór fram á sal skólans föstudaginn 23. maí. Útskrift vorsins er sú fjölmennasta í sögu skólans og var því fjölmenni á sal, útskriftarnemendur og fjölskyldur þeirra ásamt kennurum og starfsfólki skólans. Eftir einstaka veðurblíðu dagana á undan ákvað sólin að láta lítið á sér bera þennan dag en dagurinn var fallegur enda er útskriftardagur alltaf mikill hátíðisdagur fyrir útskriftarnemendur og fjölskyldur þeirra og ekki síður fyrir starfsfólk skólans.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Við athöfnina veitti skólameistari Guðbjörgu Jónatansdóttur, Gunnari Valdimarssyni og Kristjönu Hildi Gunnarsdóttur gullmerki FS en þau hafa öll starfað við skólann í 25 ár.

Í útskriftarhópnum voru 99 stúdentar, 40 luku verknámi, 18 luku námi af starfsnámsbrautum, 5 útskrifuðust af sjúkraliðabraut, 15 af starfsbrautum og 2 iðnmeistarar. Þá útskrifaðist fyrsti hópurinn úr ÍAK einka- og styrktarþjálfun en það voru 13 nemendur. Þess má geta að sumir ljúka prófi af fleiri en einni braut. Karlar voru 86 en konur 81. Alls komu 95 úr Reykjanesbæ, 25 úr Suðurnesjabæ, 10 úr Grindavík, 15 úr Vogum og 22 komu annars staðar af landinu.

Dagskráin var með hefðbundnu sniði. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti prófskírteini og flutti ávarp og Guðmundur Grétar Karlsson aðstoðarskólameistari flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Hermann Borgar Jakobsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Gunnar Valdimarsson kennari flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Að venju var flutt tónlist við athöfnina en að þessu sinni lék Almar Örn G. Arnarson á trompet, Igor Kabala á harmoniku og Viktoria Isolde Nooteboom á píanó. Þau voru öll að ljúka stúdentsprófi af tónlistarbraut.

Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og þátttöku í félagslífi og má sjá nöfn verðlaunahafa hér til hliðar. Kristján Ásmundsson skólameistari afhenti 100.000 kr. námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Ísabella Auður Nótt Matthíasdóttir styrkinn. Ísabella hlaut einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi en hún útskrifaðist af félagsvísindabraut með 9,69 í meðaleinkunn.

Við útskriftina veittu foreldrafélag skólans og Reykjanesbær verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum félagsins í vetur. Það var Lilja Dögg Friðriksdóttir forvarnafulltrúi skólans sem afhenti verðlaunin. Það voru þau Arnór Berg Jóhannsson og Hafdís Rán Húnbogadóttir sem voru dregin úr hópi þeirra nemenda sem uppfylltu skilyrðin fyrir þátttöku en þau fengu bæði spjaldtölvu að gjöf.

Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti styrki úr styrktarsjóði Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóðurinn var stofnaður af Kaupfélagi Suðurnesja og Gunnari Sveinssyni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Tilgangur sjóðsins er að efla og auka veg skólans með því að styrkja nemendur skólans til náms, að styðja við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og að veita nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Þær Anna Arnarsdóttir, Brynja Arnarsdóttir og Sandra Sól Ar

Þessir nemendur fengu viðurkenningar:

Við athöfnina voru veittar viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og þátttöku í félagslífi og má sjá nöfn verðlaunahafa hér.

Ísabella Auður Nótt Matthíasdóttir fékk viðurkenningar frá skólanum fyrir góðan árangur í ensku og sál- og uppeldisfræði. Hún fékk einnig gjafir frá Landsbankanum fyrir árangur sinn í íslensku, samfélagsgreinum og erlendum tungumálum, verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði og gjöf frá Þýska sendiráðinu fyrir góðan árangur í þýsku. Ísabella fékk námsstyrk úr skólasjóði en hann er veittur þeim nemanda sem er með hæstu meðaleinkunn við útskrift og hlaut Ísabella 100.000 kr. styrk en hún var með 9,69 í meðaleinkunn. Hún fékk einnig 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi.

Elín Bjarnadóttir fékk verðlaun fyrir árangur sinn í íþróttafræði og spænsku og fyrir góðan árangur á afreksíþróttabraut. Elín fékk einnig verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði.

Oskar Michal Cichy fékk verðlaun fyrir árangur sinn í stærðfræði, vefforritun og tölvugreinum. Hann fékk viðurkenningu frá DMM lausnum en fyrirtækið veitir þeim nemanda Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem útskrifast með afburðaárangur í forritun, styrk sem nemur skráningargjaldi ársgjalds við Háskóla Íslands eða samsvarandi upphæð gegn framvísun staðfestingu á greiðslu skólagjalda, kjósi nemandinn að hefja nám í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði á háskólastigi.

Almar Örn Gærdbo Arnarson fékk verðlaun frá Efnafræðifélaginu fyrir góðan árangur í efnafræði og gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í stærðfræði og raungreinum. Almar fékk einnig Raungreinaverðlaun HR sem veitt eru fyrir góðan árangur í raungreinum á stúdentsprófi. Um er að ræða bókaverðlaun, auk þess sem verðlaunahafar sem kjósa að hefja nám við Háskólann í Reykjavík fá niðurfelld skólagjöld fyrstu önnina í námi.

Elva Bernharðs Guðmundsdóttir hlaut verðlaun fyrir árangur sinn í ensku, íslensku, spænsku og tölvuleikjagerð.

Guðmunda Ösp Ólafsdóttir fékk verðlaun fyrir árangur sinn í ensku, sálfræði og fata- og textílgreinum.

Thelma Kristín Freysdóttir fékk verðlaun fyrir árangur sinn í félagsfræði og spænsku og viðurkenningu frá Þekkingarsetri Suðurnesja fyrir góðan árangur í náttúrufræðigreinum.

Igor Kabala fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í íslensku sem annað tungumál. Igor fékk Menntaverðlaun HÍ en þau eru veitt útskriftarnemenda sem hefur sýnt framúrskarandi árangur í námi til stúdentsprófs auk þess að hafa sýnt eftirtektarverða frammistöðu á sviði lista eða íþrótta, átt mikilvægt framlag til skólafélaga eða skólans eða sýnt þrautseigju við erfiðar aðstæður. Verðlaunin eru 20 þús. kr. gjafabréf og að auki fær verðlaunahafi, kjósi hann að hefja nám við Háskóla Íslands, styrk sem nemur upphæð skrásetningargjalds fyrsta skólaárið, 75 þús. kr.

Lilja Bergmann Tryggvadóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í sálfræði og verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði.

Haukur Snær Hlynsson hlaut verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði og gjöf frá Stærðfræðifélaginu fyrir góðan árangur í stærðfræði.

Róbert Páll Arason fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur á húsasmíðabraut og hann fékk einnig viðurkenningu frá Isavia fyrir góðan árangur í verk- og tæknigreinum.

Arnar Smári Hannesson fékk gjöf frá Landsbankanum fyrir góðan árangur í verk- og tæknigreinum og hann fékk einnig gjafir frá Ískraft, Rönning og Reykjafelli fyrir árangur sinn í rafiðngreinum.

Marteinn Frans Svavarsson fékk gjafir frá Ískraft, Rönning og Reykjafelli fyrir árangur sinn í rafiðngreinum.

Hilmar Máni Hlynsson hlaut viðurkenningar fyrir góðan árangur í stærðfræði og efnafræði.

Tómas Breki Bjarnason fékk verðlaun frá Verkfræðistofu Suðurnesja fyrir góðan árangur í stærðfræði.

Agata Wanda Jedrzejczak fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur á listnámsbraut.

Alexandra Líf Ingþórsdóttir og Alicja Íris Grochólska fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í fata- og textílgreinum.

Dzana Crnac hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í ensku.

Elísabet Birgisdóttir, Gísli Grétar Sigurðsson og Jón Garðar Arnarsson fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í stærðfræði.

Hafþór Ernir Ólason fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í viðskiptagreinum.

Heba Lind Guðmundsdóttir hlaut viðurkenningu fyrir góðan árangur í sál- og uppeldisfræði.

Ólafía Sigríður Árnadóttir og Sara Margrét Jóhannsdóttir fengu viðurkenningu fyrir góðan árangur í sálfræði.

William Patrik Ryan fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í vefforritun.

Þorbjörg Halldóra Gunnarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir góðan árangur í tölvuleikjagerð.

Helgi Rúnar Þórarinsson fékk viðurkenningu vegna þátttöku á Íslandsmóti Iðngreina.

Guðrún Lilja Magnúsdóttir, Hermann Borgar Jakobsson, Jökull Ingi Kjartansson, Kristín Embla Magnúsdóttir, Margrét Norðfjörð Karlsdóttir, María Rán Ágústsdóttir og Sóley Halldórsdóttir fengu viðurkenningu fyrir störf í þágu nemenda.

Hermann Borgar Jakobsson nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra,

Þær Anna Arnarsdóttir, Brynja Arnarsdóttir og Sandra Sól Aradóttir fengu 40.000 kr. styrk fyrir góðan árangur í tjáningu og ræðumennsku.

Arnór Berg Jóhannsson og Hafdís Rán Húnbogadóttir fengu verðlaun fyrir jákvæða framkomu á skemmtunum félagsins í vetur.