Safnahelgi
Safnahelgi

Fréttir

Eldgosið stöðugt og hraun flæðir mestmegnis til norðurs
VF/Ísak Finnbogason
Þriðjudagur 18. júní 2024 kl. 16:00

Eldgosið stöðugt og hraun flæðir mestmegnis til norðurs

Eldgosið hefur verið nokkuð stöðugt síðustu daga og áfram gýs úr einum gíg. Frá honum flæðir hraun mestmegnis til norðurs en einnig safnast hluti hraunsins upp sunnan megin við gíginn. Hraunið sem fer til norðurs fer í hrauntjörnina við Sýlingarfell og þaðan áfram norður fyrir það þar sem hraunið þykknar.

Í gær um hádegisbil kom lítið gat í gíginn vestanverðan og þaðan flæddi hrauntaumur stutta leið vestur í átt að Sundhnúk, en sá taumur hefur ekki verið virkur frá því í gær. Lítil sem engin skjálftavirkni er á gosstöðvunum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Á tímabilinu 3. - 10. júní var hraunflæði frá eldgosinu metið um 10 m3/s og síðan þá hafa ekki orðið markverðar breytingar á virkni eldgossins sem bendir til að flæðið sé nokkuð stöðugt. Þrátt fyrir að eldgosið sé enn í gangi mælist landris í Svartsengi (eins og í síðasta eldgosi).

Niðurstöður líkanreikninga sýna að landrisið í Svartsengi sé vegna kvikuinnflæðis sem er á bilinu 1-2 m3/s og bætist við í kvikusöfnunarsvæðið. Ef kvikusöfnun undir Svartsengi ásamt hraunflæði á yfirborði er lagt saman sýnir það svipað kvikuflæði frá dýpi og fyrir eldgosið. Enn þá er talsverð óvissa í líkanreikningum og mati á hraunflæði frá eldgosinu síðustu vikuna sem getur haft áhrif á þetta mat. Áfram verður fylgst náið með framvindu atburðarins.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Likan_Textaleidretting18062024

Eftirfarandi línurit sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undir Svartsengi á milli þeirra eldgosa eða kvikuhlaupa sem hafa orðið frá því í nóvember 2023. Rauða línan sýnir áætlað rúmmál kviku sem hefur bæst við kvikusöfnunarsvæðið undir Svartsengi frá 30. maí til 17. júní.

Samkvæmt veðurspá er suðaustanátt í dag, en suðlægari í kvöld. Gasmengunin fer til norðvesturs og síðar norðurs og má gera ráð fyrir að mengun mælist á norðanverðu Reykjanesi. Á morgun er hæg breytileg og síðar vestlæg átt. Gasmengunin mun þá færast í átt að höfuðborgarsvæðinu. Hægt er að fylgjast með rauntímamælingum ýmissa gastegunda á vefnum loftgaedi.is og gasdreifingarspá hér .

Hættumat sem gefið var út þann 13. júní er enn í gildi til 20. júní, að öllu óbreyttu.