Fréttir

Bryndís gagnrýndi Þórkötlu harðlega: „Við treystum ykkur ekki“
Bryndís með dóttur sinni, Védísi Hafsteinsdóttur. Mynd úr safni Víkurfrétta.
Fimmtudagur 12. nóvember 2026 kl. 09:00

Bryndís gagnrýndi Þórkötlu harðlega: „Við treystum ykkur ekki“

„Ég stend með Grindavík en ég verð að hugsa um mína fjárhagslegu áhættu með því og börn sem ég þarf að hugsa um.“ Þetta sagði Bryndís Gunnlaugsdóttir í harðorðri ræðu á kynningarfundi um endurkaupaáætlun Fasteignafélagsins Þórkötlu í Grindavík í gær. Hún gagnrýndi kaupverð eignanna, skamman aðdraganda að lokum hollvinasamninga og skort á skilningi á aðstæðum Grindvíkinga.

Bryndís tók tvisvar til máls á fundinum og lagði áherslu á að endurreisn Grindavíkur snerist um fleira en fasteignaviðskipti. Taka þyrfti mið af fjárhag fjölskyldna, skólagöngu barna, tilfinningalegum tengslum við heimilin og þeim krafti sem byggðist upp í samfélaginu þegar fólk kæmi saman.

Nýsprautun vetrardekk
Nýsprautun vetrardekk

Hún hóf fyrra innlegg sitt á að hrósa kynningunni og nýju vefsvæði Þórkötlu. Kynningin hefði verið góð og Mínar síður félagsins virkilega góðar. Hún gerði síðan alvarlegar athugasemdir við bæði áætlunina sjálfa og hvernig hún hefði verið kynnt.

Gagnrýndi að áætlunin væri birt 10. nóvember

Bryndís sagði illa til fundið að birta endurkaupaáætlunina 10. nóvember, á degi sem hefði þunga merkingu fyrir Grindvíkinga vegna rýmingar bæjarins þremur árum áður.

„Enginn Grindvíkingur vildi vera inni á mínum síðum Þórkötlu 10. nóvember,“ sagði hún.

Sjálf hefði hún þann dag lesið að íbúð sín væri ósöluhæf. Félagið hefði átt að fresta birtingunni um viku og leyfa Grindvíkingum að eiga dag samstöðu í gulum og bláum litum bæjarins.

Hún sagði tímasetninguna dæmi um að ekki væri nægilegt að segjast vera í góðum tengslum við Grindvíkinga. Skilningur á reynslu þeirra þyrfti að birtast í framkvæmd.

Örn Viðar Skúlason, framkvæmdastjóri Þórkötlu, viðurkenndi í svari sínu að yfirsést hefði að taka tillit til dagsetningarinnar og sagði félaginu það leitt.

Þeir fyrstu heim taki mestu áhættuna

Kaupverð eignanna var eitt helsta gagnrýniefni Bryndísar. Þórkatla hyggst miða grunnverð við sömu krónutölu og félagið greiddi fyrir eignirnar á sínum tíma. Bryndís sagði það ekki endurspegla aðstæður í Grindavík í dag.

Þjónustan væri önnur en áður og húsnæðið ekki í sama ásigkomulagi. Þeir sem ættu að ríða á vaðið og flytja fyrst heim væru því beðnir um að taka mesta fjárhagslega áhættu.

Að hennar mati ætti einmitt að veita því fólki mestan stuðning eða afslátt.

Bryndís sagðist jafnframt hafa tekið nærri sér orðalag í kynningu Arnar um að þeir sem kæmu heim stæðu með Grindavík. Ákvörðun um heimflutning væri miklu flóknari en svo að hún mældi vilja fólks til að styðja bæinn.

„Þetta er ekki bara spurning um að standa með Grindavík, við þurfum að hugsa um okkar peninga og hvernig við lifum lífinu,“ sagði hún.

Fjölskyldur þyrftu að meta fjárhagslega áhættu og hagsmuni barna sinna samhliða lönguninni til að snúa aftur.

Hollvinasamningarnir hafi gert fólki kleift að prófa sig áfram

Bryndís hrósaði hollvinasamningum Þórkötlu og sagði þá hafa veitt fólki mikilvægt tækifæri til að máta sig við veruleikann í Grindavík.

Hún gagnrýndi hins vegar að þeim ætti að ljúka í lok janúar. Fólki gæfust aðeins um ellefu vikur til að bregðast við og þeir sem gætu ekki gengið að nýju fyrirkomulagi þyrftu að tæma húsin aftur.

Sumir hefðu nýtt fyrri heimili sín sem eins konar sumarhús eða leið til að viðhalda tengslunum við bæinn. Það hefði tilfinningalegt gildi sem ekki mætti líta fram hjá.

Hún tengdi tímasetninguna einnig við þorrablót Grindvíkinga og gagnrýndi að fólk ætti að tæma húsin rétt í kringum slíkan samkomutíma.

„Tilfinningar skipta okkur máli,“ sagði Bryndís og bætti við að litlir hlutir sem virtust ef til vill ekki mikilvægir fyrir fasteignafélag gætu skipt miklu við endurreisn samfélags.

„Það þarf góð og tíð samskipti til að byggja upp traust“

Bryndís sagði traust til Þórkötlu skorta og að góð kynning ein og sér breytti því ekki.

„Við treystum ykkur ekki,“ sagði hún.

Hún taldi samskipti félagsins við Grindvíkinga undanfarin ár ekki hafa verið nægilega góð eða regluleg. Til að byggja upp traust þyrfti viðvarandi samtal og vandaða upplýsingagjöf.

Vantraustið hefði einnig áhrif á hvernig hún mæti loforð um framtíðarsölu eignanna. Hún sagðist ekki treysta því að félagið myndi ekki síðar selja húsnæði á brunaútsölu þegar réttindi fyrri eigenda rynnu út.

Bryndís kallaði því eftir lengri forkaupsrétti. Hann ætti að ná fram yfir þann tíma þegar eignirnar færu á almennan markað, þannig að fyrri eigendur gætu brugðist við ef þær yrðu boðnar á lægra verði.

Örn hafnaði því á fundinum að eignir yrðu settar á brunaútsölu og sagði kaupverð Þórkötlu verða lágmarksverð við sölu. Hann sagði ekki liggja fyrir ákvörðun um framlengingu núverandi forgangsréttar.

Vilja fá fólk heim – þá þurfi að velja réttan tíma

Þegar Bryndís tók aftur til máls undir lok fundarins hvatti hún Þórkötlu til að færa tímamótin fram á vor. Hún líkti tímasetningu átaksins við samkomuhald: ekki væri skynsamlegt að halda veislu í lok mánaðar þegar allir væru að gæta að útgjöldunum.

„Þið viljið að við tökum ákvörðun á erfiðasta tímabilinu okkar í staðinn fyrir að bíða fram á vor,“ sagði hún.

Með vorinu kæmu birtan, úrslitakeppnin í körfubolta, sjómannahelgin og fleiri tilefni fyrir fólk til að koma saman. Þá væri rétti tíminn til að spyrja Grindvíkinga hvort þeir vildu koma heim.

Hún sagði mikinn kraft hafa verið í samfélaginu síðastliðið vor en að takmarkanir á gistingu hefðu dregið úr honum. Við endurreisn þyrfti að hlúa að slíkum krafti.

„Það er svo augljóst að þið hugsið í Excel,“ sagði Bryndís og kallaði eftir meiri áherslu á samfélagsuppbyggingu.

Hún benti jafnframt á að barnafjölskyldur skipulegðu flutninga gjarnan með tilliti til skólaársins. Janúar og febrúar væru því óheppilegur tími til svo stórra ákvarðana.

Bryndís hvatti félagið til að gefa fólki tíma til 1. júní, halda hollvinasamningunum áfram á meðan og leyfa Grindvíkingum að fara yfir valkostina áður en þeir þyrftu að taka ákvörðun.

Örn sagði að farið yrði yfir ábendingar um að horfa til vorsins. Engin breyting á fyrirhuguðum lokum hollvinasamninga var þó tilkynnt á fundinum.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100