Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar nám

Fréttir

Breið sam­staða um sam­starf í nýrri bæj­ar­stjórn Grindavíkur
Mynd: grindavik.is
Föstudagur 29. maí 2026 kl. 10:11

Breið sam­staða um sam­starf í nýrri bæj­ar­stjórn Grindavíkur

Oddvitar allra flokka í nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur vinna nú sameiginlega að samfélagssáttmála um framtíð Grindavíkur og samstarfi á nýju kjörtímabili. Þetta kemur fram á vef bæjarfélagsins.

„Vilji allra bæjarfulltrúa stendur til þess að vinna saman að þeim krefjandi en jafnframt spennandi verkefnum sem fram undan eru og leggja grunn að áframhaldandi uppbyggingu samfélagsins í Grindavík,“ segir í frétt á grindavik.is.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Áhersla er lögð á samstöðu og ábyrgð á tímum þar sem mikið er í húfi fyrir Grindvíkinga og bæjarfélagið.

Gert er ráð fyrir að samstarfssamningur og frekari áherslur nýrrar bæjarstjórnar verði kynntar á næstu dögum.

Fyrsti fundur nýrrar bæjarstjórnar verður haldinn 2. júní næstkomandi.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar