Fréttir

Bifreið valt út í móa
Rúta rann út af Norðurljósavegi nærri Bláa lóninu í hálku og vóg salt þar sem hún var komin. Mynd frá lesanda.
Þriðjudagur 3. desember 2019 kl. 09:10

Bifreið valt út í móa

Bílvelta varð í Brekadal í Reykjanesbæ um helgina. Ökumaðurinn hafði misst af beygju sem hann hugðist taka og ætlaði því að hemla og snúa við. Ekki tókst betur til en svo að bifreiðin hafnaði utan vegar og valt út í móa. Ökumaður kenndi eymsla og ætlaði að leita til læknis. Bifreiðin var óökufær eftir veltuna.

Enn fremur rann rúta út af Norðurljósavegi í hálku og vóg salt þar sem hún var komin. Dráttarbifreið var fengin til að draga hana upp á veginn. Engir farþegar voru um borð.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þá kærði lögreglan á Suðurnesjum nokkra ökumenn fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók mældist á 132 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km á klukkustund. Um var að ræða erlendan ferðamann.

Fáeinir voru svo teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur.