„Óhætt að vera, starfa og búa í Grindavík“
Skarphéðinn Berg Steinarsson segir nýtt áhættumat skapa grundvöll fyrir næstu skref í endurreisn bæjarins
Niðurstaða endurskoðaðs áhættumats er að óhætt sé að vera, starfa og búa í Grindavík. Hætta er þó enn til staðar og óvissustig almannavarna gildir áfram. Þetta kom fram í erindi Skarphéðins Bergs Steinarssonar, verkefnisstjóra í málefnum Grindavíkur hjá forsætisráðuneytinu, á opnum fundi í Gjánni á þriðjudagskvöld.
Skarphéðinn sagði áhættumatið eiga að vera leiðarljós um hvernig samfélagið umgengst þá hættu sem enn er fyrir hendi. Öryggi fólks verði að vera í fyrirrúmi, en hægt sé að mæta hættunni með vöktun, viðbúnaði og öðrum mótvægisaðgerðum.
Reynslu heimamanna gefið aukið vægi
Skarphéðinn rifjaði upp gagnrýni Grindvíkinga á fyrra áhættumat og hvernig það var unnið. Það hefði ekki notið trausts heimamanna. Við endurskoðunina hefði því ekki aðeins verið farið yfir niðurstöðurnar heldur einnig breytt vinnulaginu. Reynslu þeirra sem dvelja og starfa í bænum hefði verið gefið aukið vægi.
Hann sagði vel á annað hundrað manns hafa komið að vinnunni með einum eða öðrum hætti. Þar á meðal væru fulltrúar Grindavíkurbæjar, lögreglu, almannavarna og sérfræðingar á ýmsum sviðum. Dóra Hjálmarsdóttir hjá Verkís hefði haldið utan um vinnuna.
Niðurstöðurnar sem kynntar voru á fundinum varða fyrst og fremst daglegt öryggi í Grindavík, skólahald og búsetu. Þær verða grunnur að heildstæðu áhættumati sem ráðgert er að ljúka í október eða nóvember.
Undirbúningur að kaupum á húsnæði
Skarphéðinn greindi frá því að ríkisstjórnin hefði fjallað um niðurstöðurnar fyrr um daginn. Hún teldi forsendur fyrra mats síns um skólahald, frá 10. apríl, hafa breyst. Áfram þyrfti þó að fylgjast náið með þróun mála og tryggja að vöktun, viðvörunarkerfi og rýmingaráætlanir væru virk. Sérstaklega yrði að gæta að hagsmunum og velferð barna við ákvarðanir um búsetu og skólahald.
Að sögn Skarphéðins skapa niðurstöðurnar einnig grundvöll til að hefja markvissan undirbúning, í áföngum, að því að bjóða Grindvíkingum að kaupa aftur íbúðarhúsnæði í bænum kjósi þeir það. Útfærsla kaupanna liggur þó ekki fyrir. Hann sagði meðal annars þurfa að ákveða verð, kjör, tímasetningar og hvort fólk gæti keypt annað hús en það sem það bjó í áður. Vonast væri til að hægt yrði að kynna tillögur um fyrirkomulagið þegar liði á október.






