Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Aðsent

Þrepaskipt útsvar
Föstudagur 13. maí 2022 kl. 15:27

Þrepaskipt útsvar

Þegar þrepaskipt útsvar er nefnt  gætu einhverjir hugsað, þýðir það ekki bara auknir skattar? Staðreyndin er aftur á móti sú að þrepaskipt útsvar breytir ekki á nokkurn hátt heildar skattbyrgði einstaklinga heldur færir til skatttekjur frá ríki til sveitarfélaga á sanngjarnari hátt en nú er.

Þrepaskipting tekjuskatts

Hugmyndin með þrepaskiptingu skatta á sínum tíma, um 2010, var að bæta upp fall í skatttekjum eftir fjármálahrunið og ekki síður að stoppa upp í fjárlagahallann sem þá var.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Nú eru hörmungar hrunsins að baki hjá ríkinu, ekki síst með stöðuleikaframlögum bankanna sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins og þáverandi forsætisráðherra, átti stærstan þá í að gera að veruleika. Um leið situr enn fjöldi fólks  eftir með sárt ennið eftir að hafa lent í „skjaldborg“  Samfylkingarinnar og VG sem sneri ekki að því að hugsa um hag fjölskyldna heldur fjármagnseigenda.

Nú rúmum áratugi eftir upptöku þrepaskiptingar er sama skipting við lýði þótt eitthvað hafi verið krukkað í kerfið sem er þó en að mestu leyti óbreytt.

Þrepaskipting útsvars

Útsvar til sveitarfélagsins er í dag línuleg hlutfall af tekjum sem leggst á allar tekjur jafnt innan skilgreinds hámarks og lámarks sem er í dag 12,44% til 14,52%.

Afleiðingin er að tekjur sveitarfélaga taka ekki mið af getu fólks til að greiða í samfélagslega þjónustu sveitarfélagana. Ein  birtingarmynd þessa skekkju er  sú að lágtekjuhópar greiða mun hærra til samfélagsins sem hlutfall af ráðstöfunartekjum en þeir efnameiri og getur munurinn jafnvel verið margfaldur eins og t.d. í leikskólum, íþróttum, tómstundum og listgreinastarfi svo fátt eitt sé nefnt.

Við hjá Miðflokknum í Reykjanesbæ teljum það sanngirnismál að útsvar bæjarins fylgi skattþrepum þannig að þeir greiða meira sem geta. Vissulega er það ekki á valdi bæjarins að breyta skattkerfinu en bærinn getur beitt sér í þessu máli og munum við gera það veiti bæjarbúar okkur umboð til þess í komandi sveitarstjórnakosningum laugardaginn 14. maí 2022.

Eggert Sigurbergsson

Höfundur er í 2. Sæti Miðflokksins í Reykjanesbæ