Sterkt atvinnulíf – Reykjanesbær sem drifkraftur nýsköpunar og fjárfestinga
Sterkt atvinnulíf – Reykjanesbær sem drifkraftur nýsköpunar og fjárfestinga
Ég hef áður sagt ykkur frá því að karlarnir í heita pottinum hafa flestir mjög sterka og oft ólíka skoðun á hinum ýmsu málefnum sem fær blóðþrýstinginn til að hækka. En það er eitt sem vinir mínir, pottormarnir, eru allir sammála um. Sterkt samfélag byggist fyrst og fremst á sterku atvinnulífi og ef það er ekki kraftur í atvinnulífinu þá blómstrar samfélagið ekki. Það þarf t.d. sterkt atvinnulíf til að íþróttir og menning blómstra í bæ sem Reykjanesbæ.
Við í Miðflokknum getum fullyrt að ef Reykjanesbær á að halda áfram að vaxa og þróast sem aðlaðandi búsetukostur, þarf atvinnulífið að vera fjölbreytt, öflugt og framtíðarmiðað. Það er ekki nóg að treysta á hefðbundna atvinnuþróun og láta hana þróast án aðkomu sveitarfélagsins, það er alls ekki hægt að láta slíkt verkefni vera á „Auto Pilot“ og ekki vera með skýra leið að markmiðinu.
Það þarf öflugt samstarf einkaaðila og sveitarfélagsins fyrir sterkt atvinnulíf hér í bæ. Reykjanesbær verður að vera með tæki og tól að mjög skýrum markmiðum bæjarins. Þannig að vera með virka og skýra vinnu við atvinnustefnu til framtíðar í samstarfi við atvinnulifið og aðra hagsmunaaðila. Mikilvægt er að bæta samkeppnisstöðu bæjarins og þannig tryggja kjöraðstæður fyrir núverandi fyrirtæki í bænum og jafnframt vinna að nýsköpun nýrra fyrirtækja og verkefna. Góð og markviss samvinna við einkaframtakið mun ótvírætt skapa fleiri tækifæri, sem leiðir af sér öflug fyrirtæki og fjölbreyttari störf fyrir íbúa Reykjanesbæjar.
Reykjanesbær hefur einstaka stöðu á landinu er í nálægð við alþjóðaflugvöll, hafnir, iðnaðarsvæði, er með sterka innviði og í dauðafæri til að byggja upp öflugt atvinnusvæði sem laðar að fjárfestingu, nýsköpun og fjölbreyttari fyrirtæki. En slíkt gerist ekki af sjálfu sér, það krefst markvissrar stefnu og virkrar þátttöku sveitarfélagsins sem þarf að vera sveigjanlegt, vera tilbúið m.a. með lóðir, aðstöðu eða annað sem það vill bjóða fyrirtækjum upp á, hvort sem það eru heimafyrirtæki eða fyrirtæki sem við viljum bjóða aðstöðu hér í okkar bæ.
Við í Miðflokknum erum á því að við þurfum að gera Reykjanesbæ að raunverulegum nýsköpunarbæ þar sem hugmyndir fá að vaxa og dafna sem leiðir til nýrra starfa. Það felur í sér að finna leiðir til að styðja betur við frumkvöðla, skapa aðstöðu fyrir sprotafyrirtæki og tryggja að fyrirtæki sjái bæinn sem fyrsta valkost þegar kemur að uppbyggingu og fjárfestingu. Við þurfum að sýnileg og nýta tækifærin hér í Reykjanesbæ.
Sérstaklega þarf að horfa til þróunar lykilsvæða eins og Ásbrúar, Helguvíkurhafnar og annarra iðnaðarsvæða. Þar liggja gríðarleg tækifæri til framtíðaruppbyggingar, en þau verða aðeins að veruleika ef sveitarfélagið vinnur markvisst með einkaaðilum að skýrri framtíðarsýn og hraðari framkvæmdum. Við í Reykjanesbæ erum svo lánsöm að eiga hér aðila og fyrirtæki sem eru að leggja sitt af mörkum í að búa til verðmæti. Reykjanesbær þarf því að tryggja að þeirra vinna fái bensín á eldinn til að dafna. Því verður það ekki ofsagt að samvinna er því lykillinn, ekki einangruð stjórnsýsla.
Til að tryggja aukinn kraft í atvinnuþróun þarf einnig að endurskoða hvernig sveitarfélagið vinnur að markaðssókn og kynningu á Reykjanesbæ sem atvinnusvæði. Við þurfum virkja metnaðarfulla markaðssetningu sem laðar að fyrirtæki, fjárfesta og hæfileikafólk. Það snýst um að segja skýrt: „Hér er pláss fyrir vöxt, nýsköpun og tækifæri.“
Í því samhengi þarf að tryggja að atvinnuþróun sé skilvirk og samræmd. Hvort sem það er í gegnum stofnanir eða samstarfsvettvanga sveitarfélaga á Suðurnesjum, þarf að vera skýr ábyrgð, hraðvirk ákvarðanataka og skýrt forystuhlutverk í atvinnumálum. Reykjanesbær á að vera leiðandi afl, ekki aðili sem bíður eftir ákvörðun og þróun annarra.
Mig langar að sýna ykkur hvernig Borgarbyggð kynnir atvinnulóðir sínar á vefsíðu sinni, sjá: https://byggjum.borgarbyggd.is/atvinnuhusalodir/
Í ljósi þessa alls, þá getur maður ekki annað en spurt sig:
„Af hverju erum við með ríki í ríkinu hér uppi á Ásbrú sem heitir Kadeco?“
„Af hverju er starfsemi Kadeco ekki undir stjórn Reykjanesbæjar?“
Markmiðið er skýrt, Reykjanesbær á að vera sjálfstætt og sjálfbært bæjarfélag í góðu samstarfi innan SSS og við einkageirann þar sem hugmyndir verða að veruleika, fjárfestingar finna sér farveg og íbúar hafa raunveruleg tækifæri til atvinnu og framfara í sínu nærumhverfi.
x-M fyrir nýja sýn, sterkt atvinnulíf sem skapar tækifæri og framtíð í Reykjanesbæ.
Rúnar Fossádal Árnason









