Aðalbros
Aðalbros

Aðsent

Sterkir skólar – sterk framtíð í Suðurnesjabæ
Miðvikudagur 6. maí 2026 kl. 06:55

Sterkir skólar – sterk framtíð í Suðurnesjabæ

Öflugt skólastarf er ein mikilvægasta undirstaða farsæls samfélags. Það er í skólunum sem framtíðin mótast – þar sem börn og ungmenni öðlast þekkingu, sjálfstraust og færni til að takast á við lífið. Ef við viljum jöfn tækifæri fyrir alla verðum við að setja menntun í forgang.

Í Suðurnesjabæ viljum við skapa skólasamfélag þar sem hver nemandi fær að njóta sín og þroskast á eigin forsendum. Það krefst bæði fagmennsku og skýrrar sýnar. Við leggjum áherslu á gæði kennslu, vellíðan nemenda og sterkt stoðkerfi innan skólanna.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Ein af grunnforsendum góðs skólastarfs er að fjölskyldur hafi aðgang að leikskólaplássi þegar þörf er á. Með því styðjum við bæði við börnin sjálf og foreldra þeirra. Þegar komið er í grunnskóla skiptir miklu máli að bekkir séu ekki of stórir. Minni hópar skapa betra námsumhverfi og gera kennurum kleift að mæta þörfum hvers og eins nemanda. Kennarar og starfsfólk skólanna eru lykilþáttur í þessari vegferð. Við viljum efla stuðning við þau, bæta starfsskilyrði og tryggja að þau hafi þau verkfæri sem þarf til að sinna starfi sínu af fagmennsku og metnaði. Sterkt skólastarf byggir á sterkum fagstéttum.

Við viljum einnig leggja aukna áherslu á snemmtækan stuðning og öfluga sérkennslu. Með því er hægt að grípa inn í fyrr, styðja betur við nemendur og koma í veg fyrir að áskoranir vaxi með tímanum. Geðheilsa og vellíðan barna er ekki síður mikilvæg. Skólarnir þurfa að vera öruggur staður þar sem nemendur finna fyrir stuðningi og tilheyra. Samfella í námi skiptir einnig miklu máli. Með auknu samstarfi milli leikskóla, grunnskóla og frístundastarfs tryggjum við betri heildarsýn og stuðlum að jákvæðri þróun barna í gegnum öll skólastigin.

Aðbúnaður skiptir líka máli. Við viljum tryggja að skólahúsnæði sé gott, vel við haldið og styðji við nútímalegt nám. Þá má ekki gleyma mikilvægi skapandi greina. Tónlistarnám er dýrmætur hluti af menntun barna – það eflir sköpunargáfu, sjálfsþroska og gleði.

Fjárfesting í menntun er fjárfesting í framtíðinni. Með skýra sýn og markvissum aðgerðum getum við byggt upp enn sterkari skóla í Suðurnesjabæ – skóla þar sem öll börn fá tækifæri til að blómstra.

Setjum X við B þann 16. maí.

Sindri Lars Ómarsson

Guðrún Sif Pétursdóttir.

Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar