Aðsent

Rödd unga fólksins í Grindavík X-U
Helga Dís, oddvidi hjá Rödd unga fólksins í Grindavík.
Föstudagur 13. maí 2022 kl. 11:28

Rödd unga fólksins í Grindavík X-U

Rödd unga fólksins var stofnuð fyrir rúmum fjórum árum og bauð fram í bæjarstjórnarkosningum í Grindavíkurbæ. Flokkurinn fékk rúm 19% atkvæða og var þar með næst stæðsta stjórnmálaaflið í bæjarfélaginu.

Í þetta skiptið er Rödd unga fólksins eini óháði flokkurinn sem býður fram í Grindavík og með yngstu frambjóðendurnar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Síðasta kjörtímabil var vissulega viðburðarríkt enda ekki margar bæjarstjórnir sem hafa þurft að takast á við bæði heimsfaraldur og eldgos.

Framundan er nýtt kjörtímabil og stefnir Rödd unga fólksins á aukið fylgi og að komast í meirihluta.

Helga Dís, oddviti flokksins, segir að Rödd unga fólksins sé tilbúin til að leggja sitt að mörkum. Hún vonar að íbúar séu reiðubúnir til að ganga inn í kjörklefann með opnum hug. ,,Okkur finnst það vera lýðræðislegt þroskamerki þegar fólk er reiðubúið að kjósa aðra flokka en það kaus í seinustu kosningum. Okkur finnst það benda til þess að fólk kjósi eftir að hafa tekið raunverulega afstöðu til flokkana og fólksins sem í þeim starfa að hverju sinni. Rödd unga fólksins telur mikilvægt að fá breiða skýrskotun í ákvarðanartöku og telur það veita aðhald“.

Rödd unga fólksins er sterk og fjölbreytt liðsheild. Ekkert sæti á þeirra lista er merkilega en eitthvað annað og hver hlekkur í keðjunni skiptir máli. Okkar bakland eru bæjarbúar Grindavíkur. Við viljum starfa í þeirra þágu og þeim til heilla. Helga Dís segist vera stolt af því að tilheyra svona samheldni og samstíga liðsheild eins og Rödd unga fólksins er. Mikil sjálfboðavinna liggur á bak við framboðið og allir hafa lagt á sig mikla vinnu undanfarið. Bæjarbúar Grindvíkur væru lánsamir að hafa þetta unga og kraftmikla fólk til starfa hjá sér.

Við erum ekki að hugsa næstu fjögur ár í tímann. Við horfum inn í framtíðina. Við erum framtíðin og við viljum fjárfesta í henni.

(Tilkynning frá Rödd unga fólksins)