Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Aðsent

Mikilvægu verkefnin framundan
Miðvikudagur 9. desember 2020 kl. 12:06

Mikilvægu verkefnin framundan

Íbúar Suðurnesja hafa fundið vel fyrir þeim afleiðingum sem Covid hefur haft á atvinnulífið hér á svæðinu síðustu mánuði og sér því miður ekki alveg fyrir endann á þeim í bráð. Atvinnuleysi er í hæstu hæðum og ef spár ganga eftir stefnir það enn hærra þegar fram líða stundir. Að ein lítil veira gæti haft svona gífurlega mikil áhrif á líf okkar og atvinnu hefði engum dottið í hug fyrir nokkrum misserum síðan, en því miður er það raunveruleikinn sem við búum við í dag. En hver er ástæða þess að afleiðingar faraldursins rista svona djúpt í atvinnulífinu á Suðurnesjum og hvað er til ráða?

Fyrir því eru nokkrar ástæður en vinnumarkaðurinn á Suðurnesjum hefur alla tíð verið frekar einsleitur og reitt sig á fáar atvinnugreinar í stað þess að auka fjölbreytni fyrir komandi kynslóðir. Við höfum treyst of mikið á flugstöðina og þau umsvif sem þar hafa átt sér stað á síðustu árum. Þessar nýju aðstæður sem uppi eru núna kalla á viðhorfsbreytingu og nýja nálgun. Ríkisstjórnin og hið opinbera verða því nú að líta til Suðurnesjanna og reyna að lágmarka þann skaða sem þessi staða gæti haft á svæðið til frambúðar, ég er hins vegar ekki viss um að hún geri sér grein fyrir alvarleika hennar. Við verðum því að berjast fyrir svæðinu og halda áfram þeirri uppbyggingu sem hefur átt sér stað og halda stjórnvöldum þannig við efnið. Það er ekki lengur nóg fyrir stjórnvöld að segja “þið hafið flugstöðina” 

Public deli
Public deli

Á síðustu misserum hafa ráðherrar Framsóknar verið mjög iðnir við að flytja störf og verkefni einstakra stofnana út á landsbyggðina, hvort það sé jákvætt skref í rétta átt er ekki mitt að svara. Mín spurning er hins vegar sú hví líta þeir ekki til Suðurnesja við slíkar ákvarðanir og þá sérstaklega núna þegar atvinnuleysið á svæðinu slær hvert metið á fætur öðru. Ef Viðreisn ætti þingmann í Suðurkjördæmi þá myndi sá hinn sami hafa hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi og berjast fyrir atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum á hvaða toga sem hún yrði. Því að á Suðurnesjum er mannkostur góður, vinnuumhverfi framúrskarandi og innviðir sterkir fyrir hvaða starfsemi sem er. Gleymum því heldur ekki að hvert og eitt starf er verðmætt og skapar virði fyrir þann einstakling sem það stundar og tekjur fyrir það samfélag sem hann tilheyrir. 

Á Suðurnesjum þarf því að skapa fjölbreytt störf sem eru verðmæt og ekki árstíðarbundin heldur til frambúðar. Stuðla að aukinni nýsköpun og tækifærum og hafa Suðurnesin í huga þegar ákvarðanir eru teknar varðandi atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni. Síðast en ekki síst þarf að hlúa sérstaklega vel að þeim einstaklingum sem nú hafa misst atvinnu sína og veita þeim alla þá aðstoð sem í boði er til þess að komast í gegnum þá erfiðleika sem framundan eru. Á tímum sem þessum er því afar brýnt að hið opinbera geri allt til þess að það ástand sem nú ríkir í atvinnumálum vari sem styðst og leiði ekki til langvarandi vanda. Til þess að svo megi vera þarf að taka stór skref strax.

Það eru mikilvægu verkefnin framundan.

Arnar Páll Guðmundsson
Formaður Viðreisnar í Reykjanesbæ