WestJet bætir við sumaráætlun sína til Íslands
– flogið frá KEF til Edmonton og Winnipeg
Kanadíska flugfélagið WestJet hefur bætt við tveimur nýjum kanadískum áfangastöðum við áætlun sína til Keflavíkurflugvallar sumarið 2026. Flogið verður einu sinni í viku á milli KEF og Edmonton frá 27. júní á næsta ári og milli KEF og Winnipeg frá 28. júní. Áður hafði WestJet tilkynnt að flogið yrði aftur milli KEF og Calgary fjórum til sex sinnum í viku frá 17. maí til 14. október næsta sumar.
WestJet flýgur á Boeing 737MAX vélum milli KEF og áfangastaðanna þriggja. Félagið bættist í hóp flugvallarsamfélagsins á KEF í fyrra og styrkir enn sambandið með öflugri endurkomu sinni nú í sumar.
John Weatherill, framkvæmdastjóri viðskiptasviðs hjá WestJet segir að með því að bæta við beinni flugtengingu á milli Edmonton og Íslands staðfesti félagið þá skuldbindingu að viðhalda sterkum alþjóðatengingum fyrir íbúa Alberta-fylkis. Þá gegni Winnipeg einnig mikilvægu hlutverki fyrir WestJet. „Eins og Winnipeg hefur gegnt mikilvægu hlutverki í sögu WestJet hefur þessi flugleið sérstaka þýðingu fyrir hið fjölmenna íslenska samfélag í Manitoba.“
„Það er sannarlega spennandi að sjá WestJet efla viðveru sína á Íslandi með því að hefja beint flug milli Keflavíkur og tveggja nýrra áfangastaða, Edmonton og Winnipeg,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli.
„Þessi ákvörðun endurspeglar sterka trú flugfélagsins á íslenska markaðnum og eflir enn frekar tengingar milli Norður-Ameríku og Íslands. Við hlökkum til að taka á móti farþegum WestJet og teljum að þessar nýju flugleiðir verði aðlaðandi kostur fyrir Íslendinga sem hyggjast ferðast yfir Atlantshafið og jafnvel heimsækja ættingja í Winnipeg.“






