Viðskipti

Stofnfundur Félags atvinnulífsins í Grindavík í hádeginu
Ljósmynd: Jón Steinar Sæmundsson
Föstudagur 27. nóvember 2026 kl. 10:02

Stofnfundur Félags atvinnulífsins í Grindavík í hádeginu

Stofnfundur Félags atvinnulífsins í Grindavík verður haldinn í Gjánni í Grindavík í dag, föstudaginn 27. nóvember, klukkan 12. 

Með stofnun félagsins er stefnt að því að skapa sjálfstæðan samstarfsvettvang fyrir atvinnulífið í Grindavík. Markmiðið er að efla tengsl milli fyrirtækja, gæta sameiginlegra hagsmuna þeirra og vinna að nýjum tækifærum og uppbyggingu bæjarins.

Félaginu er ætlað að leiða saman fyrirtæki úr ólíkum atvinnugreinum til að móta sameiginlega sýn og vinna að verkefnum sem styrkja atvinnulífið og samfélagið í Grindavík.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Fyrirtæki af öllum stærðum, einyrkjar, stofnanir og félagasamtök sem tengjast Grindavík eru hvött til að mæta á fundinn, kynna sér félagið og taka þátt í að móta starf þess frá upphafi.

Boðið verður upp á súpu í hádeginu og eru gestir hvattir til að skrá sig á viðburðinn.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100