Bygg
Bygg

Viðskipti

Samkaup skilaði 910 milljóna króna tapi árið 2024
Höfuðstöðvar Samkaupa hf. eru í Reykjanesbæ og næsta hús er Nettó verslunin sem opnaði fyrir um þremur áratugum og var þá fyrsta stórverslunin á Suðurnesjum. Margir Suðurnesjamenn hafa lýst yfir áhyggjum sínum yfir því hvort höfuðstöðvar Samkaupa verði áfram á Suðurnesjum.
Þriðjudagur 3. júní 2025 kl. 10:52

Samkaup skilaði 910 milljóna króna tapi árið 2024

Samstæða Samkaupa, sem rekur 60 verslanir undir merkjum Nettó, Kjörbúðarinnar, Krambúðarinnar og Iceland, tapaði nærri 910 milljónum króna árið 2024, samkvæmt nýbirtri ársskýrslu. Þetta er veruleg breyting frá árinu áður þegar félagið hagnaðist um 268 milljónir króna.

Heildartekjur samstæðunnar námu 41,6 milljörðum króna, sem er samdráttur um 1,8% frá fyrra ári. Framlegð af vörusölu var 10,2 milljarðar, eða 24,5% af tekjum, en það er lækkun um einn milljarð frá 2023.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 1.550 milljónum króna, sem er 42,4% lækkun frá árinu áður þegar hann var 2.693 milljónir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Óvissa um verslun í Grindavík

Í skýrslunni kemur fram að verslun Samkaupa í Grindavík hafi verið lokuð allt árið 2024, og óvíst sé hvort eða hvenær hún opni á ný. Bókfært virði fasteigna í Grindavík var 113 milljónir króna í lok ársins og vörubirgðir metnar á 41 milljón. Stjórnendur telja eignirnar fulltryggðar og gera ráð fyrir að fá tjónið bætt, að frádreginni sjálfsábyrgð, og hafa því ekki fært þær niður.

Hlutafjáraukning og sameiningarferli

Eignir félagsins voru bókfærðar á 17,8 milljarða í lok árs og eigið fé nam 2,2 milljörðum. Eiginfjárhlutfall lækkaði úr 17,2% í 12,2% milli ára.

Í desember 2024 var ákveðið að hækka hlutafé félagsins með útgáfu nýrra hluta að andvirði 996 milljóna króna. Aðgerðin var liður í að styrkja eiginfjárstöðu Samkaupa og skapa svigrúm fyrir framtíðarvöxt. Fjármagnið var einkum notað til að greiða niður skuldir við Íslandsbanka. Áskriftargengi var 24 krónur á hlut og var félagið metið á 9,4 milljarða fyrir fjárfestinguna (pre-money).

Skömmu áður hafði Samkaup undirritað samkomulag við Heimkaup um sameiningu félaganna. Samkeppniseftirlitið samþykkti samrunann í maí.

Orkan kaupir hlut í Samkaupum

Þann 22. maí skrifaði Orkan, dótturfélag Skeljar, undir samning um kaup á 53,1% hlut Kaupfélags Suðurnesja í Samkaupum fyrir 2,9 milljarða króna. Kaupverðið verður greitt með nýju hlutafé í Orkunni. Í þessum viðskiptum er Samkaup metið á 5,6 milljarða eða 13 krónur á hlut.

Viðskiptin eru háð því að Orkan nái samkomulagi við aðra hluthafa og tryggt verði að Skeljartengd félög fari með að minnsta kosti 90,01% eignarhlut eftir viðskiptin.

Ásgeir Helgi Reykfjörð Gylfason, forstjóri Skeljar, sagði í tilkynningu til Kauphallarinnar að bæði Samkaup og Heimkaup hefðu glímt við áskoranir í rekstri. Með sameiningunni verði til sterkur samkeppnisaðili á markaði í gegnum hagræðingu og endurskipulagningu.

Eins og greint var nýlega frá hætti Gunnar Egill Sigurðsson sem forstjóri Samkaupa. Heiður Björk Friðjónsdóttir hefur tekið við sem forstjóri þar til sameining við Orkuna er yfirstaðin.