SSS uppbyggingarsjóður
SSS uppbyggingarsjóður

Viðskipti

Samkaup eignast 38% hlut í Kjötkompaní
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 1. október 2025 kl. 16:59

Samkaup eignast 38% hlut í Kjötkompaní

Samkaup hefur keypt 38% hlut í Kjötkompaní. Með þessum kaupum hyggst Samkaup efla samstarfið við fyrirtækið og leggja aukna áherslu á framboð í sínum verslunum og fjölbreytta vöruþróun, meðal annars í tilbúnum réttum  og kjötvörum. Samkaup rekur 65 verslanir um land allt undir vörumerkjum Nettó, Kjörbúðin og Krambúðin og verða vörur Kjötkompanís í auknum mæli í boði í þessum verslunum.  Einnig verða í boði vörur frá vörumerkinu Matarbúrið sem er í eigu Kjötkompaní en þar er áhersla á þróun tilbúna rétta.
 
„Markmið okkar með þessu samstarfi er að auka vöuúrval í verslunum Samkaupa fyrir viðskiptavini. Tíminn er dýrmætur og við sjáum tækifæri í að einfalda viðskiptavinum lífið með auknu framboði af úrvals kjötvörum ásamt nýjum og spennandi tilbúnum réttum. Kjötkompaní var stofnað árið 2009 og eru þau fagfólk í sínu starfi og eitt öflugasta vörumerki í matvöru. Þau hafa verið leiðandi á sínu sviði í gegnum tíðina og mikill fengur fyrir okkur að starfa með þeim“ segir Auður Daníelsdóttir, forstjóri Samkaupa.
 
„Við í Kjötkompaní hlökkum mikið til að hefja þetta spennandi samstarf við Samkaup og taka virkan þátt í að skapa fjölbreytt og aðlaðandi vöruframboð. Við komum til með að leggja áherslu á fjölbreytt úrval tilbúinna rétta, gæða kjötvörur og meðlæti undir okkar eigin vörumerki Kjötkompaní, auk nýja og spennandi vörumerkis okkar, Matarbúrið.
Samstarfið opnar skemmtilegan möguleika til að ná til allra landsmanna þar sem verslanir Samkaupa eru staðsettar víðs vegar um landið. Við lítum á þetta sem einstakt tækifæri til að koma vörunum okkar nær íslenskum heimilum og gera matargerðina einfaldari, fjölbreyttari og bragðbetri.“ segir Jón Örn Stefánsson, matreiðslumeistari og eigandi Kjötkompanís.
 
Samningurinn er gerður með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25
Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025