Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Orkustöðin er ný heilsuræktarstöð í Reykjanesbæ
Sigurbjörg Gunnarsdóttir og systurnar Elín Rós og Ljósbrá Mist Bjarnadætur í Orkustöðinni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 22. janúar 2021 kl. 08:01

Orkustöðin er ný heilsuræktarstöð í Reykjanesbæ

Hlúð að heilsunni í glæsilegri stöð með útsýni út á sjó. Vilja stuðla að betri heilsumenningu.

Orkustöðin er ný heilsuræktarstöð sem opnaði nýlega við Bakkastíg 20 í Njarðvík. Í gamla daga fór mikil orka í að vinna fisk í húsnæðinu en það hefur nú verið hannað frá grunni sem heilsuræktarstöð. „Við blöndum saman jóga, styrktar- og þolþjálfun. Æfingaaðstaðan er eins og best verður á kosið og útsýnið engu líkt þegar horft er út á hafið,“ segja eigendurnir, þær Sigurbjörg Gunnarsdóttir og systurnar Elín Rós og Ljósbrá Mist Bjarnadætur, sem Víkurfréttir hittu í vikunni.

Elín Rós er jógakennari, Ljósbrá Mist einkaþjálfari og Sigurbjörg er sálfræðimenntaður íþróttafræðingur en hún, ásamt Björgvini manni sínum, hefur rekið fyrirtækið Hreyfisport í Reykjanesbæ. Þau reka einnig tækjasalinn í Orkustöðinni en í honum eru splunkuný tæki af bestu gerð og öll aðstaða til fyrirmyndar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Systurnar bjóða upp á tímatöflu með fjölbreyttum jógatímum og styrktartímum sem heita CHALK. Eins eru þær með fjölbreytt námskeið af ýmsu tagi. Þá bjóða þær upp á unglingaþjálfun fyrir krakka í 8. til 10. bekk sem byggir á Chalk, jóga og barnajóga fyrir börn fimm til ellefu ára. Chalk er æfingakerfi sem hefur notið mikilla vinsælda um allan heim og í tímum er notast við ketilbjöllur, handlóð, teygjur og fleira. Í jógasalnum eru hitapanelar sem gefa frá sér infrarauða geisla. Þá verður einnig boðið upp á ýmsa viðburði á og á næstunni verður m.a. kvennakakó með Heiðrúnu Maríu og karlakakó með handboltakempunni Ólafi Stefánssyni.

Tímapantanir eru í gegnum smáforritið Glofox og enn eru einhverjar Covid-19-takmarkanir en þær fréttir komu þó í upphafi vikunnar að hægt er að hafa tækjasalinn opinn eftir ákveðnum reglum. Í hópatímum mega vera tuttugu manns með þjálfara.

„Orkustöðin er staðsett í hjarta Reykjanesbæjar, Bakkastíg 20, alveg við sjóinn. Það er því auðvelt að nýta sér grænar samgöngur eins og strætó, hjólreiðar og göngur.  Eitt af markmiðum Orkustöðvarinnar að styðja við tengsl okkar við náttúruna með því að vera við hafið.“

Í hjarta Reykjanesbæjar

Þær stöllur segja að það hafi verið sérstakt að stofna fyrirtæki í upphafi heimsfaraldurs. Þær Elín Rós og Sigurbjörg eru gamlar vinkonur og leiðir þeirra lágu saman í þetta ævintýri sem nú er orðið að veruleika en þær segja að þær hafi rætt þetta fyrst fyrir tveimur árum síðan.

JeEs arkitektastofa í Keflavík hannaði Orkustöðina og þá komu verktakar á Suðurnesjum að byggingu hennar. „Jákvæð upplifun og vellíðan skiptir okkur öllu máli. Í hönnuninni var lögð áhersla á hlýleika og tengingu við náttúruna. Staðsetning stöðvarinnar var sérstaklega valin vegna ýmissa þátta. Orkustöðin er staðsett í hjarta Reykjanesbæjar, Bakkastíg 20, alveg við sjóinn. Það er því auðvelt að nýta sér grænar samgöngur eins og strætó, hjólreiðar og göngur. Eins erum við oftar en ekki aftengd náttúrunni í okkar daglega lífi og því er eitt af markmiðum Orkustöðvarinnar að styðja við tengsl okkar við náttúruna með því að vera við hafið.“

Bætt heilsumenning

Það var mikil vinna sem fór í breytingar á húsnæðinu, m.a. var stór veggur á milli tveggja bila rifinn niður, byggð ný hæð og nýtt þak. „Við vildum geta notað aðila á svæðinu eins mikið og hægt var í öllu sem við vorum að gera og það gekk vel. Við byrjuðum að vinna í húsnæðinu í júlí og húsnæðið var svo tilbúið í lok árs. Það gekk mikið á og við, vinir okkar og fjölskyldumeðlimir komu að því verki sem við erum þakklátar fyrir. Við erum mjög ánægðar með árangurinn og viljum stuðla að bættri heilsumenningu,“ segja þær stöllur og eitt af því sem þær vildu var að finna gott nafn á starfsemina.

„Nafnið Orkustöðin hefur sterka þýðingu og tengir saman alla þá þætti sem við leggjum áherslu á þ.e. jóga, styrk, þol, líðan og tengsl okkar við náttúruna og orkuna sem við fáum frá henni,“ sögðu þær Elín Rós, Ljósbrá Mist og Sigurbjörg að lokum.

Systurnar Elín Rós og Ljósbrá Mist Bjarnadætur í hópasalnum með Atlantshafið í baksýn.

Sigurbjörg Gunnarsdóttir í tækjasal Orkustöðvarinnar sem er búinn splunkunýjum tækjum af bestu gerð.

Í hópasalnum eru einnig tæki og tól til að nota við æfingarnar.