Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Viðskipti

Dyr inn í töfraheim Tulipop opnast á nýjum leikvelli KEF
Ljósmyndari: Garðar Ólafsson
Fimmtudagur 16. október 2025 kl. 09:47

Dyr inn í töfraheim Tulipop opnast á nýjum leikvelli KEF

Nýtt leiksvæði fyrir börn, innblásið af töfrandi veröld Tulipop, hefur verið opnað á Keflavíkurflugvelli (KEF). Það er sett upp með það í huga að gera flugvöllinn að skemmtilegum stað fyrir yngstu gestina og miðar hönnun þess að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barnanna í frjálsum leik. Leiksvæðið er samstarfsverkefni Tulipop og hönnunarteymisins ÞYKJÓ. Að verkefninu komu einnig fyrirtækin Krumma og Merking, ásamt smíðaverkstæðunum Irma og Fjöl.

Leiksvæðið er staðsett við veitingasvæðið Aðalstræti þar sem gengið er inn í aðra hæð nýrrar austurálmu flugvallarins. Á sama svæði eru einnig gagnvirk leiktæki, svokölluð iWall frá finnska fyrirtækinu CSE Entertainment, sem einnig eru tilvalin fyrir þá gesti flugvallarins sem vilja stytta sér stundir og losa smá orku með leik.

Ævintýraheimur Tulipop er landsmönnum vel kunnur en fyrirtækið var stofnað árið 2010 og er hugarfóstur Signýjar Kolbeinsdóttur og Helgu Árnadóttur. Ævintýri Tulipop byggja á litríkum og líflegum töfraheimi þar sem skemmtilegar og fjölbreyttar persónur lifa og hrærast. Tulipop hefur m.a. framleitt metnaðarfulla og vandaða 52ja þátta teiknimyndaþáttaröð fyrir börn sem hefur slegið í gegn í Sjónvarpi Símans og RÚV, auk þess að vera komin í sýningar í yfir 30 löndum víða um heim, meðal annars í Bretlandi, Ítalíu, Miðausturlöndum og Kína.



„Að opna leiksvæðið og þennan ævintýraheim Tulipop fyrir yngstu gestum okkar á Keflavíkurflugvelli er með því skemmtilegasta sem við höfum gert. Við vinnum stöðugt að því að gera upplifun allra gesta Keflavíkurflugvallar sem besta og við erum ótrúlega glöð að geta núna komið til móts við yngstu gestina og foreldra þeirra í samstarfi við Tulipop. Við vonumst til að leikvöllurinn muni gera biðina eftir ferðalaginu enn skemmtilegri og styttri en áður enda er það þessi yngsti hópur sem á kannski hvað erfiðast með að bíða eftir flugtaki,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á Keflavíkurflugvelli.

„Það hefur verið ótrúlega spennandi verkefni að skapa töfraheim fyrir börnin á Keflavíkurflugvelli í samstarfi við ÞYKJÓ. Markmið Tulipop hefur frá upphafi verið að skapa töfrandi undraveröld fyrir yngstu kynslóðirnar og miðla jákvæðum skilaboðum til barna og fullorðinna. Við vonum innilega að þetta skili sér til yngstu gesta flugvallarins og að þessi hópur muni njóta sín á leiksvæðinu næstu árin,“ segir Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Tulipop.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25