Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Viðskipti

32 milljarða króna stækkun atNorth í Reykjanesbæ
Miðvikudagur 3. september 2025 kl. 10:11

32 milljarða króna stækkun atNorth í Reykjanesbæ

Nýir samningar gagnaversfyrirtækisins atNorth við stóra erlenda viðskiptavini og grænn raforkusamningur við Landsvirkjun byggja á umfangsmikilli fjárfestingu í stækkun gagnavera fyrirtækisins á Íslandi síðustu ár.

atNorth lauk nýverið samningum við tvo stóra erlenda viðskiptavini um umtalsverða stækkun í gagnaverum fyrirtækisins á Íslandi. Annar þeirra varðar stækkun skýjaþjónustu Crusoe í gagnaveri atNorth í Reykjanesbæ, en það er með stærstu gagnaverum sinnar gerðar á Norðurlöndum. Áætluð fjárfesting tengd þessari stækkun nemur um 32 milljörðum króna og fellur að mestu leyti til árið 2026. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona
Optical Studio 15, 18, 20, 22, 25, 27, 29. ágúst 1-6 sept kona

Þá hefur verið greint frá grænum raforkusamningi Landsvirkjunar og atNorth til fimm ára um kaup gagnaversins á Akureyri á 12 MW forgangsorku frá og með síðari hluta næsta árs.

„Gríðarlega aukin fjárfesting í vexti og uppbyggingu starfsemi atNorth á Íslandi, sér í lagi í Reykjanesbæ og á Akureyri, byggir á traustum langtímasamningum við öfluga viðskiptavini sem tryggja okkur stöðugan vöxt næstu ár. Fjöldi starfsmanna á Íslandi hefur einnig aukist verulega og eru þeir nú um 100 talsins. Við sjáum fyrir okkur vatnaskil á næsta ári þegar sú mikla fjárfesting í innviðum og mannauði sem ráðist hefur verið í fer að skila sér í arðbærum rekstri,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri atNorth.

Í ársreikningi fyrir 2024 kemur fram að fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum (CAPEX) hafi verið 192,4 milljónir dala, samanborið við 30,3 milljónir dala 2023, sem þýðir þreföldun á efnahagsreikningi félagsins. Upphæðin samsvarar tæplega 23,4 milljörðum króna samanborið við 3,7 milljarða króna árið áður. Áður hefur komið fram að áætluð heildarfjárfesting atNorth á Íslandi fyrir 2024-2025 verði um 41 milljarðar króna og má ætla að það verði nokkuð nærri lagi.
Vöxtur atNorth á Íslandi síðustu ár hefur falið í sér fjárfestingu í innviðum, mannauði og ferlum, sem tímabundið hefur haft áhrif á afkomu félagsins. Tap á rekstrinum jókst á milli ára og nam 11,5 milljónum dala árið 2024, samanborið við 6,3 milljónir dala árið áður. EBITDA fór úr 8,3 milljónum dala 2023 í 2,3 milljónir dala á síðasta ári.

Á yfirstandandi ári gerir atNorth ráð fyrir jákvæðri EBITDA afkomu og áframhaldandi rekstrarbata á næsta ári.

Alls rekur atNorth átta gagnaver á Norðurlöndum, en þar af eru þrjú á Íslandi, í Reykjanesbæ, Hafnarfirði og á Akureyri. Tvö til viðbótar eru svo í smíðum í Danmörku og Finnlandi. Starfsmenn atNorth eru rúmlega 200, þar af helmingurinn á Íslandi.

Reykjanes Optikk ljósan25
Reykjanes Optikk ljósan25