Minning: Steinn Erlingsson
Við sjóinn um miðbik Garðsins stendur Steinshús. Þar bjuggu Guðrún og Erling með börnum sínum sex. Steinn var annar í systkinahópnum. Frumbyggjar Steinshúss voru Steinn Lárusson og Guðrún Þórðardóttir, langafi og langamma Steins. Þau bjuggu þar um sína daga.
Þarna var gott að vaxa úr grasi. Miðsvæðis í dreifbýlum Garðinum, verslun Björns og Auðar nærri, símstöðin og fjölmörg fiskvinnsluhús. Gerðavörin neðan við húsið sem tók á móti trillum var mikil. Ekki að undra að sjómennska laðaði unga menn til dáða.
Húsið Sjólyst stendur þar við hliðina, nú nýuppgert. Þar bjó Una. Einstök vinátta og samgangur milli heimilanna.
Síkin frusu á vetrum, oft með góðum skautasvellum. Mikið var Steinn lipur skautamaður, eins og hann var gagnvart öðru sem hann tók sér fyrir hendur. Hann sveif um svellið aftur á bak og áfram, hoppaði léttilega yfir hindranir sem þar féllu til. Það gátu verið girðingar eða tunnur sem þar höfðu frosið fastar.
Næg vinna í fiskverkun, aðgerð, umstöflun á saltfiski, breiða og taka saman á stakkstæðum og pakka. Bæði frysting og saltfiskverkun.
Guðrún í eldhúsinu, Steinn kemur gangandi frá frystihúsinu, vippar sér léttilega yfir nýgert grindverkið um Steinshús, jafnfætis. Móðirin talar með stoltum rómi: Þarna kemur Steinn í kaffitímanum sínum. Framkoma Steins er mótuð af ljúfmennsku og hógværð.
Það kom ekki annað til en að fara ungur á sjó. Steinn var vélstjóri og báðir bræður hans skipstjórar á eigin fjölum. Dugmikið og sjálfbært fólk.
Mikið voru þau Hildur og Steinn flott par. Börnin þeirra fjögur voru dugnaðarfólk, samstíga og öflug fjölskylda. Mikið var lagt á elsku frænda er hann sá á bak Hildi sinni og synir þeirra létust af slysförum. Hann stóð eftir sem klettur og bar sinn þunga harm að mestu innra með sér.
Söngurinn var hans akkeri síðari hluta lífsgöngunnar. Hann var vel lærður söngmaður og færði kirkjusöng á Suðurnesjum framlag sitt lengi. Hann var kóramaður og einsöngvari um langt skeið.
Það var verðmætt er söngurinn leiddi Hafdísi, kórakonu frá Akranesi, og Stein saman. Þau áttu samstíga vináttu í góðan áratug.
Steinn var virkur golfspilari. Hann og Hafsteinn á Bjargi léku golfhring daglega er fært var. Óvænt fyrir fáum vikum greindist Steinn sjúkur, lokin stutt en snörp. Það er verðmæti að vera fullvirkur í samfélaginu svo lengi. Þeim sem honum kynntust þótti vænt um Stein.
Megi kær frændi góðu einu mæta á nýjum lendum.
Hörður Gíslason





