Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

VF í 40 ár: Rockville  á Miðnesheiði
Miðvikudagur 24. júní 2020 kl. 10:03

VF í 40 ár: Rockville á Miðnesheiði

Ratsjárstöð Varnarliðsins í Rockville á Miðnesheiði var byggð árið 1953. Hún var starfrækt til ársins 1997, þegar henni var lokað og ný stöð opnuð skammt frá. Það eru því tuttugu ár um þessar mundir frá lokun stöðvarinnar. Í dag er fátt sem minnir á tilvist ratsjárstöðvarinnar. Fáein grenitré vekja athygli þegar horft er til svæðisins úr fjarska, tré sem uxu í skjóli húsa sem síðar voru rifin en um áratugur er síðan Rockville var jafnað við jörðu. Þegar Rockville var og hét voru þar um tuttugu hermannaskálar, mötuneyti, pósthús og íþróttahús. Á staðnum voru einnig áberandi tröllvaxnar hvítar kúlur. Inni í þeim voru ratsjár sem höfðu það hlutverk að fylgjast með flugumferð og þá helst véla frá Sovétríkjunum.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Íslendingar sóttu í klúbbana

Í Rockville var einnig bar eða klúbbur sem naut mikilla vinsælda. Íslendingar sóttu m.a. klúbbinn í Rockville mjög stíft. Í Víkurfréttum árið 1996 var greint frá því í nóvember að Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli, sem var sérstakt lögregluembætti, hafi stöðvað stóran hóp Íslendinga sem voru á leið á skemmtun í klúbbi Varnarliðsins í Rockville. Hluti hópsins var kominn inn á klúbbinn og fóru lögreglumenn inn á staðinn og vísuðu fólkinu út. Nálægt eitthundrað manns voru á gestalista og ætluðu á staðinn en fengu ekki inngöngu.

Þorgeir Þorsteinsson, þáverandi sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, sagði í samtali við Víkurféttir á þeim tíma að þetta næði ekki nokkurri átt. Klúbbar varnarliðsins væru fyrst og fremst fyrir varnarliðsmenn og gesti þeirra og að það gengi ekki að stórir hópar Íslendinga væru að sækja varnarliðsklúbba. Helst áttu lögregluyfirvöld erfitt með að hafna Íslendingum inngöngu sem boðið var í klúbbana í varnarstöðinni í gegnum alþjóðleg félög eins og Lions og Kiwanis en þessir klúbbar voru starfandi á Keflavíkurflugvelli. Þorgeir sagði fulla ástæðu til að taka í taumana gagnvart Rockville-klúbbunum en þar höfðu nokkrar „íslenskar“ skemmtanir farið fram þá um haustið. Jafnvel kom til greina að loka alveg á heimsóknir Íslendinga í Rockville.

Veitingamenn fundu fyrir Íslendingaveislum

Veitingamenn á Suðurnesjum fundu mikið fyrir Íslendingaveislunum í klúbbum kanans. Það væri erfitt að keppa við klúbbana á Vellinum og í Rockville en margfalt lægra vín- og bjórverð var sögð ástæða þess að Íslendingar sóttust eftir því að komast í klúbbana.

Ári eftir að Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli vísaði Íslendingunum út úr klúbbnum í Rockville var stöðinni lokað og starfsemin flutt. Þá varð Rockville að draugabæ um nokkurt skeið eða þar til Byrgið gerði samning við utanríkisráðuneytið um afnot af húsakosti í Rockville fyrir meðferðarstöð. Byrgið var með starfsemi í Rockville í nokkur misseri eða þar til í júní 2003 að þeim var gert að yfirgefa staðinn. Byrgið flutti í uppsveitir Árnessýslu, Rockville varð aftur draugabær og nokkrar byggingar urðu eldi að bráð. Byggingar þar höfðu svo vart verið rifnar þegar tilkynnt var um brottför Varnarliðsins frá Íslandi.

Fátt sem minnir á gamla tíð

Eins og áður segir þá er það trjágróður á svæðinu sem er það eina sem minnir á gömlu ratsjárstöðina þegar horft er til svæðisins úr fjarska. Þegar nær er komið þá má ennþá upplifa malbikaðar götur og sökkla þeirra bygginga sem þarna stóðu. Víkurfréttir settu flygildi á loft á svæðinu til að sýna lesendum sem best það umhverfi sem þar er. Fráveita er frá Rockville með útrás í Leirunni. Þá er stutt í rafmagn og bæði heitt og kalt vatn.

Fyrirhuguð Íslendingaskemmtun í Rockville-klúbbi varnarliðsins:

Sýslumaðurinn sendi hundrað manna hóp heim

Víkurfréttir - fimmtudaginn 21. nóvember 1996

Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli stöðvaði stóran hóp í Rockville sl. laugardagskvöld. Hluti fólksins var kominn inn á staðinn og fóru lögreglumenn þar inn og vísuðu fólkinu út. Nálægt eitt hundrað manns sem voru á lista og ætluðu á staðinn fengu ekki inngöngu.

„Þetta nær ekki nokkurri átt. Klúbbar varnarliðsins eru fyrst og fremst fyrir varnarliðsmenn og gesti þeirra,“ sagði Þorgeir Þorsteinsson, sýslumaður, og sagði að það gengi ekki að stórir hópar íslendinga væru að sækja varnarliðsklúbba. Þorgeir sagði dæmi þess að smáir sem stórir hópar fengju að fara í klúbbana í boði varnarliðsmanna og nefndi dæmi sem erfitt væri að hafna s.s. alþjóðleg félög á vellinum sem væru einnig með starfsemi á landinu. í þeim tilfellum væru Íslendingarnir í boði viðkomandi félaga. Að öðru leyti ætti það ekki að vera hægt fyrir hópa utan vallar að sækja skemmtanir innan vallar.

Þorgeir sagði fulla ástæðu til að taka í taumana gagnvart Rockville-klúbbnum en þar hafa nokkrar „íslenskar“ skemmtanir farið fram að undanförnu. Jafnvel kæmi til greina að loka alveg fyrir það að Íslendingar færu í Rockville. Hann sagðist ekki þekkja nóg hvað hafi farið fram í Yfirmannaklúbbnum en eftirlit með skemmtanahaldi á vellinum yrði hert.

Eins og kom fram í Víkurfréttum í síðustu viku er hér um nokkuð stórt „vandamál“ að ræða. Íslendingar hafa hingað til ekki þurft að hafa mikið fyrir því að komast inn á veitingastaði og klúbba. Þorgeir sagði að það ætti ekki að líðast að íslenskir starfsmannahópar geti tekið sig saman um að halda skemmtanir á Keflavíkurflugvelli en dæmi er um slíkt.

Í framhaldi af umræðu Víkurfrétta um skemmtanahald á vellinum hafa fleiri mál þessu tengd verið komið á framfæri við blaðið. Keilumenn og þeir sem stunda pílukast á Suðurnesjum fara mikið upp á Keflavíkurflugvöll til að stunda íþróttir sínar. Að sögn eins forráðamanna Keilufélags Suðumesja stendur þetta starfsemi eina keilusalarins á Suðurnesjum fyrir þrifum en talið er að um 30% af allri keiluspilamennsku fari fram á vellinum.