Ný stjórn FKA Suðurnes og Guna Mežule er nýr formaður
Aðalfundur FKA Suðurnesjum var haldinn á Library nýlega. Ný stjórn var kjörin og er Guna Mežule nýr formaður samtakanna en hún tekur við af Guðnýju Birnu Guðmundsdóttur.
Að loknum hefðbundnum aðalfundarstörfum fór hópurinn í Gusu til Unnar Svövu gusumeistara í Leiru. FKA Suðurnes býður til opnunarviðburðar starfsársins í samstarfi við Blue Car Rental og Brons fimmtudaginn 15. október nk. þar sem FKA konur eru hvattar til að taka með sér vinkonu sem hefur áhuga á að kynnast FKA og starfi félagsins.
Ný stjórn hefur nú tekið við fyrir starfsárið 2026–2027 og hana skipa:
Guna Mežule – formaður
Erla Bjarný Gunnarsdóttir – varaformaður
Sigurbjörg Gunnarsdóttir – stjórnarkona og ritari
Ásta Kristín Guðmundsdóttir – stjórnarkona og gjaldkeri
Erna Rán Arndísardóttir – varastjórn
Unnur Svava Sverrisdóttir – varastjórn
Sæunn Alda Öldudóttir – varastjórn
„FKA Suðurnes þakkar fráfarandi stjórn kærlega fyrir gott starf, tíma og metnað í þágu félagsins. Sérstakar þakkir fær fráfarandi formaður, Guðný Birna Guðmundsdóttir, fyrir hennar góða framlag, forystu og ómetanlegt starf fyrir FKA Suðurnes,“ segir Guna Mežule, nýr formaður deildarinnar.
„Ný stjórn fer full tilhlökkunar inn í nýtt starfsár og að halda áfram að efla starf FKA á Suðurnesjum með áherslu á að styrkja konur í atvinnulífinu, auka sýnileika og þátttöku og skapa fleiri tækifæri til tengslamyndunar, vaxtar og samstarfs,“ segir Guna.
„Helstu áherslur okkar verða að virkja fleiri félagskonur, styrkja tengslanetið á svæðinu og bjóða upp á vandaða og valdeflandi viðburði þar sem tengslamyndun, hagnýt þekking, innblástur og tækifæri fyrir félagskonur fara saman. Við viljum einnig leggja ríka áherslu á að auka sýnileika kvenna í atvinnulífinu á Suðurnesjum, kynna félagskonur, fyrirtæki þeirra, árangur og spennandi verkefni sem þær eru í. Markmið okkar fyrir starfsárið 2026–2027 er að byggja áfram upp öflugt, sýnilegt og vel tengt samfélag FKA-kvenna á Suðurnesjum, þar sem þátttaka, valdefling, samstarf og raunverulegt virði fyrir félagskonur er í forgrunni,“ segir þessi öfluga félagskona sem hefur átt sæti í aðalstjórn FKA og tekið að sér fjölmörg verkefni fyrir Félag kvenna í atvinnulífinu.

Ný stjórn FKA Suðurnes.








