Mannlíf

Löggustarfið er lífsstíll
Betsý Ásta Stefánsdóttir veitti Krissa viðurkenningu fyrir hönd Ungmennaráðs Reykjanesbæjar og þau Gunnhildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður Fjörheima og Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar, gáfu Krissa blóm fyrir hönd Samtakahópsins.
Thelma Hrund Hermannsdóttir
Thelma Hrund Hermannsdóttir skrifar
föstudaginn 11. nóvember 2022 kl. 07:35

Löggustarfið er lífsstíll

segir Kristján Freyr Geirsson, eða Krissi lögga, eins og hann er oftast kallaður

Krissi átti 35 ára starfsafmæli þann 1. nóvember síðastliðinn og í tilefni dagsins veitti Samtakahópurinn, þverfaglegur forvarnarhópur sem vinnur að forvörnum fyrir ungmenni í Reykjanesbæ, honum blómvönd, viðurkenningu og veitingar fyrir vel unnin störf. „Þetta var virkilega skemmtilegt og óvænt, ég var pínu meyr. Þetta er mikil viðurkenning fyrir mig persónulega en þakklæti er mér fyrst og fremst efst í huga,“ segir Krissi.

Krissi hefur starfað sem lögregla á Suðurnesjum í 35 ár og flestir bæjarbúar Reykjanesbæjar þekkja hann best með Lúlla löggubangsa sér við hlið. Forvarnarmál eru honum hugleikin og hefur hann verið í Samtakahópnum frá því hann var stofnaður. Hann segir mikið hafa breyst á þeim árum sem hann hefur starfað sem lögregla.

Hvers vegna ákvaðst þú að fara í lögregluna til að byrja með?

„Ég var tvítugur ungur forvitinn maður með sítt að aftan – langaði bara að prófa.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024
Með leikskólabörnum við leikskólann Gimli í Njarðvík í maí árið 1996
Ef þú horfir til baka, hvað stendur helst upp úr eftir allan þennan tíma í þessu starfi?

„Þakklæti fyrir að hafa ákveðið að prófa. Lögreglustarfið er allskonar og mikil lífsreynsla sem felst í því að starfa við þetta. Löggustarfið er þannig að maður veit ekki hvað hver dagur ber í skauti sér. Annars er það líka að gefa af sér til samfélagsins og láta gott af sér leiða.“

Hafa orðið einhverjar breytingar á starfinu á þessum 35 árum?

„Lögreglustarfið hefur á þessum tíma tekið miklum breytingum. Í dag er miklu meira í boði, meira áreiti, hraði, harka og heimurinn er galopinn fyrir öllu - sem er bæði gott og slæmt. Það er allt öðruvísi að alast upp í þessum heimi í dag en var hér áður þegar ég var að alast upp.“

Krissi lögga á mótorhjólinu árið 2007
Hver er lykillinn, hvað þarf til þess að endast í starfi eins og þessu?

„Þetta er hugsjónarstarf. Löggustarfið er lífsstíll, en til að endast svona í starfi þá er lykillinn sá að hafa brennandi áhuga á vinnunni sinni og að finna að þú sért að gera eitthvað rétt og láta gott af þér leiða. Ef þú finnur það á samstarfsfólkinu þínu og samfélaginu þá líður þér vel í hjartanu.“