Mannlíf

LadieLex snýr aftur með „UNFOLD“
Miðvikudagur 19. ágúst 2026 kl. 14:23

LadieLex snýr aftur með „UNFOLD“

– nýtt lag og tónlistarmyndband marka nýjan kafla

Eftir tveggja ára hlé frá útgáfum snýr íslenska tónlistarkonan Alexandra Ósk Sigurðardóttir, betur þekkt sem LadieLex, aftur með nýja stökulinn „UNFOLD“, sem kom út 25. ágúst.

LadieLex er fædd og uppalin í Reykjanesbæ en hefur verið búsett og starfandi í Stokkhólmi í rúman áratug og hefur frá upphafi unnið sjálfstætt að tónlist sinni, allt frá lagasmíðum og upptökum til pródúseringar og myndrænnar umgjarðar. Með „UNFOLD“ stígur hún þó nýtt skref með því að bjóða öðrum tónlistarmönnum inn í upptökuferlið í fyrsta sinn. Lifandi trommuleikur og framlag annarra hljóðfæraleikara gefa laginu nýja vídd án þess að missa þann hljóðheim sem einkennir tónlist hennar.

„UNFOLD“ fjallar um að sleppa takinu á því sem þjónar manni ekki lengur og velja sjálfan sig. Lagið byggist hægt upp frá óvissu og innri togstreitu yfir í styrk, von og frelsandi tilfinningu um að halda áfram.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Við upptökur lagsins lék Mikael Nitsche á trommur, Sven-Mikael Nyström bætti við synthum og Anna Sturesson spilaði á tambúrínu. Lagið var hljóðblandað af Christopher Göthberg í Sonika Studio og masterað af Johan Åkerström hjá Cosmos Mastering.

Samhliða útgáfu lagsins verður frumsýnt opinbert tónlistarmyndband við „UNFOLD“ á YouTube á útgáfudegi. Það var tekið upp og klippt af Jesse Leroy og unnið áfram í eftirvinnslu af LadieLex. Myndbandið fylgir tilfinningalegri stefnu lagsins og leggur áherslu á andrúmsloft, einlægni og þá umbreytingu sem á sér stað í gegnum lagið.

---- UPPLÝSINGAR UM LAGIР----

  • Flytjandi: LadieLex
  • Titill: UNFOLD
  • Útgáfudagur: 25. ágúst 2026
  • Tónlistarstefna: Alternative Indie Rock
  • Lagasmíð, texti, upptökur og pródúsering: LadieLex
  • Hljóðblöndun: Christopher Göthberg hjá Sonika Studio
  • Mastering: Johan Åkerström hjá Cosmos Mastering
  • Artwork: LadieLex
  • Ljósmyndir: Anna Sturesson
  • Trommur: Mikael Nitsche
  • Synthar: Sven-Mikael Nyström
  • Tamborína: Anna Sturesson

---- UPPLÝSINGAR UM MYNDBANDIР----

  • Upptökur og klipping: Jesse Leroy
  • Eftirvinnsla: LadieLex
Bílakjarninn
Bílakjarninn