Byko
Byko

Mannlíf

Fjólublár kjóll, 80’s toppur og vaktað pizzapartý
Laugardagur 21. mars 2026 kl. 09:07

Fjólublár kjóll, 80’s toppur og vaktað pizzapartý

Fjólublár kjóll, 80’s toppur og vaktað pizzapartý

Konný Hrund Gunnarsdóttir rifjar hér upp fermingardaginn sinn í Hvalsneskirkju á Pálmasunnudegi árið 1994. Þó að gangan upp að kirkjunni hafi verið köld og vindasöm, yljar hún sér í dag við minningar um mikinn metnað í fermingarfræðslunni, skemmtilega ferð í Vatnaskóg og dálítið öðruvísi veisluhöld en árgangurinn á undan fékk að njóta. Konný sker sig úr hópnum í fjólubláum kjól, með túperaðan topp og sálina hans Jóns míns í græjunum, en þakklæti og sjálfstæði eru þau gildi sem standa eftir þegar horft er til baka.

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Fermdist hvenær og hvar: Fermist í Hvalsneskirkju 27. mars 1994 á Pálmasunnudegi.

Hvaða prestur: Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson

Hvaða minningar standa sterkast eftir frá fermingunni þinni og fermingarundirbúningnum?

Fermingarfræðslan sjálf og ferðin í Vatnaskóg standa mest upp úr. Man að ég lagði mig alla fram um að kunna allt utanbókar sem beðið var um. Ferðin í Vatnaskóg var einnig einstaklega skemmtileg. Ég man ekkert svakalega mikið úr fermingunni sjálfri annað en að gangan upp að kirkju var köld og vindasöm og við stelpurnar vorum allar að passa upp á greiðslurnar á leiðinni. Svo er einnig minnistætt að árgangurinn á undan okkur hélt svo svakalegt fermingarpartý með þeim afleiðingum að minn árgangur fékk vaktað pizzapartý uppi í skóla með foreldrum og prestinum sem endaði með heimsókn heim til Guðjóns skólastjóra.

Hvernig fannst þér sjálfri fermingardagurinn þinn?

Ég finn fyrir hlýju þakklæti þegar ég hugsa um þennan dag. Mamma framkallaði risaveislu heima hjá okkur með alls konar kræsingum og mig minnir að afgangurinn hafi dugað í marga daga á eftir þar sem ekkert mátti vanta. Ég hitti fullt af fólki sem ég hafði varla hitt áður um ævina sem óskaði mér til hamingju með að vera komin inn í fullorðinna manna tölu og að nú væri ég loksins orðin fullgildur samfélagsþegn og ætti helst bara að byrja að vinna. Mér fannst allt þetta gamla fólk frekar kjánalegt að segja þetta þá en brosi að því í dag.

Var fermingardagurinn eins og þú hafðir ímyndað þér?

Já, eflaust var hann það. Man ekki eftir að vera með miklar væntingar annað en að ég fengi fullt af gjöfum og aur. Eitthvað sem ég held að hafi ekkert breyst hjá unglingum í dag og flestir tengja við.

Manstu eftir einhverri sérstakri gjöf sem þú fékkst eða einhverju öðru sem hafði sérstaka þýðingu fyrir þig?

Eftirminnilegasta gjöfin var ferð til Florida frá mömmu og pabba en við Linda systir og mamma og pabbi fórum til Dísu frænku okkar og vorum þar í að verða tvær vikur minnir mig. En annars á ég enn skartgripaskrín sem ég fékk sem mér þykir afskaplega vænt um.

Hver var tíðarandinn í kringum ferminguna þína – voru einhverjar sérstakar hefðir, tíska eða tónlist sem settu svip á þennan tíma?

Man ekki eftir einhverjum sérstökum hefðum annað en að það varð að vera merkt sálmabók, servíettur og ég varð að vera með hvíta blúnduhanska. Flestar stelpurnar sem fermdust með mér voru í hvítum kjólum en ég fékk lánaðan fjólubláan frá systur vinkonu minnar og dóttur vinkonu mömmu. Allt önnur stefna en hjá flestum held ég. Tónlistin var á þessum tíma aðallega Take that, Roxette og Sálin hans Jóns míns. Eða hún var það allavega hjá mér.

Þegar þú lítur til baka, hvaða gildi eða lærdóm tókstu með þér úr fermingunni sem hefur fylgt þér í lífinu?

Ætli það sé ekki sjálfstæði, samkennd og virðing fyrir náunganum. Gildi sem eru undirstaða heilbrigðra samskipta í gegnum lífið. Manstu eftir fermingarfötunum eða klippingunni? Já, fermingarkjólinn var fjólublár með hvítu tjullundipilsi. Ég var með hvíta blúnduvettlinga og ég man að ég mátti setja á mig maskara en það var allt og sumt. Ég var með mjög þykkt og sítt hár á þessum tíma. Ég fór í greiðslu til Svandísar Georgsdóttur. Greiðslan mín var þannig að það var tekið smá af hárinu í hátt tagl og settar perluspennur. Svo var hárið allt í slöngulokkum og toppurinn var túperaður upp í smá 80‘s anda. Þessa greiðslu fór ég í að mig minnir þrisvar. Fyrst í prufu, næst á fermingardaginn og svo í þriðja skiptið fyrir fermingarmyndatökuna.

Ertu að fara í einhverjar fermingarveislur í ár?

Aldrei þessu vant er engin fermingarveisla sem ég er að fara í núna í ár eða mér hefur að minnsta kosti ekki enn verið boðið í veislu þetta árið.