Byko
Byko

Mannlíf

Gengu á milli húsa til að skoða gjafir og smakka tertuafganga
Laugardagur 21. mars 2026 kl. 09:14

Gengu á milli húsa til að skoða gjafir og smakka tertuafganga

Jónína Magnúsdóttir átti sérstaklega eftirminnilegan fermingardag 7. apríl í Útskálakirkju árið 1991, enda fagnaði hún 14 ára afmæli sínu þann dag. Undirbúningurinn einkenndist af skemmtilegri fræðslu hjá Hirti Magna Jóhannssyni, reglulegum rútuferðum í ljós í Keflavík og miklum pælingum við að hanna nýja fermingarherbergið. Í þessu spjalli rifjar Jónína upp tíma þar sem fermingarbörn gengu á milli húsa til að skoða gjafir og smakka tertuafganga, og hvernig gildi eins og Gullna reglan hafa fylgt henni allt frá því hún valdi þau til upplestrar við altarið.

Hvaða minningar standa sterkast eftir frá fermingunni þinni og fermingarundirbúningnum?

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Ég á margar góðar minningar af fermingarundirbúningnum. Mér fannst fermingarfræðslan skemmtileg því Hjörtur var skemmtilegur prestur og náði til manns.

Svo var það náttúrulega ómissandi á þessum tíma að fara í 10 tíma í ljós. Ég og Una vinkona mín tókum rútuna reglulega í Keflavík fyrir ferminguna.

Hvernig fannst þér sjálfri fermingardagurinn þinn?

Hann var mjög góður og hefðbundinn. Vaknað snemma til að fara í greiðslu hjá Ásu frænku. Í framhaldi var athöfnin og svo var veislan haldin heima. Veitingarnar keyptar því mamma var kasólétt, annars hefði hún græjað þetta allt.

Var fermingardagurinn eins og þú hafðir ímyndað þér? Já, í minningunni var hann það.

Manstu eftir einhverri sérstakri gjöf sem þú fékkst eða einhverju öðru sem hafði sérstaka þýðingu fyrir þig?

Gjöfin frá mömmu og pabba var eftirminnilegust en ég fékk að versla allt nýtt í herbergið mitt og fékk að velja það sjálf. Það voru miklar pælingar með mömmu og pabba að velja því það þurfti að mæla og reyna að raða því sem ég vildi inn í litla herbergið mitt.

Hver var tíðarandinn í kringum ferminguna þína – voru einhverjar sérstakar hefðir, tíska eða tónlist sem settu svip á þennan tíma?

Það var meira um að veislurnar væru haldnar í heimahúsum. Þá var mjög skemmtileg hefð á mánudeginum eftir fermingu þar sem við fermingarsystkinin gengum á milli heimila okkar og skoðuðum fermingargjafirnar og fengum að smakka afgangana úr veislunum.

Þegar þú lítur til baka, hvaða gildi eða lærdóm tókstu með þér úr fermingunni sem hefur fylgt þér í lífinu?

Gullna reglan hefur fylgt mér frá fermingu. Við þurftum að velja okkur eitthvað til að lesa upp í athöfninni og ég valdi gullnu regluna eftir vandlega íhugun. Mér fannst og finnst hún enn svo mikilvæg.

Manstu eftir fermingarfötunum eða klippingunni?

Já, ég man sko eftir fermingarfötunum. Mamma saumaði hvíta blúnduskyrtu á mig og svo var skokkurinn keyptur í Kóda. Mamma saumaði fermingarjakkann en það þurftu allir að eiga fermingarjakka. Ég var með fléttu í hárinu.

Ertu að fara í einhverjar fermingarveislur í ár?

Ég og fjölskyldan erum að fara í þrjár fermingar.