Mannlíf

Fer í gönguferðir  í nágrenni Reykjanesvita en er ekki búin að reita allan arfann í garðinum
Með Georg bónda sínum í sólgleraugna-selfí.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 2. ágúst 2020 kl. 10:43

Fer í gönguferðir í nágrenni Reykjanesvita en er ekki búin að reita allan arfann í garðinum

Berglind Kristinsdóttir hefur heimsótt Ísland, gist á hótelum og notið góðs matar og þjónustu í sumar.

„Þrátt fyrir allt sem gengið hefur á undanfarna mánuði hefur sumarið leikið mig vel. Ég hef notið þess að sóla mig á pallinum heima, reitt arfa úr tveimur af þremur blómabeðum (bið nágranna minn hér með afsökunar á því að vera ekki búin með allt), lagað til í skápum og notið þess að ferðast innanlands,“ segir Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, SSS.

„Við hjónin fórum m.a. yfir Kjöl í júní í tuttugu stiga hita og upplifðum ansi stóran jarðskjálfta þegar við vorum stödd á Akureyri. Skjálftinn sá var nú samt aðeins minni en þessi sem við fundum fyrir á Reykjanesi nú í júlí. Ég hef líka verið duglegri núna en oft áður að gista á hótelum innanlands, notið frábærrar þjónustu og enn betri matar.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

– Hvaða staðir á Íslandi hafa heillað þig?

„Ég ætla að reyna að halda mig við stuttu útgáfuna en á Íslandi eru margir staðir sem hafa heillað mig. Fyrst ber að nefna Lambafellsgjá, eða Lambafellsklofa, í nágrenni Keilis, svo finnst mér litirnir við Seltún ægifagrir. Mér finnst nágrenni Reykjanesvita mjög heillandi og hef afar gaman að skella mér í göngutúr þar. Ef ég færi mig aðeins út fyrir Reykjanesskagann þá er Ásbyrgi ævintýralegur staður og Hallormstaðaskógur er dásemdin ein.“

– Hvað ætlar þú að gera um verslunarmannahelgina?

„Það fer nú svolítið eftir veðrinu en við ætlum alla vega eina nótt upp í bústað til tengdaforeldra minna.“

– Hver er eftirminnilegasta verslunarmannahelgin þín?

„Ef ég ætti að velja bara eina þá er það sennilega þegar ég kom fyrst í Atlavík sem barn um Verslunarmannahelgi. Það var mikil upplifun að gista í skógi, mæta á brennu og sulla í Lagarfljótinu.“

– Hvað finnst þér mikilvægt að hafa um verslunarmannahelgina?

„Mikilvægast að öllu er að hafa góðan félagsskap, þá helst í formi fjölskyldunnar! Til að fullkomna góða verslunarmannahelgi þá skemmir ekki fyrir að hafa sól, ofnæmislyf, gott á grillið og bland í poka.“



Seltún er fallegt.

Stemmning heima í sumarfíling.