Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Fæddist með tvo hægri fætur
Þriðjudagur 14. júlí 2020 kl. 09:41

Fæddist með tvo hægri fætur

Fjöllistahópurinn Hughrif í bæ málaði mynd af skessunni á vegg Svarta Pakkhússins í Reykjanesbæ í síðustu viku. Hópurinn fékk til liðs við sig myndlistarmanninn Brynjar Inga Lyngberg sem aðstoðaði við að koma hugmyndum hópsins á vegginn.

„Eins og glöggir vegfarendur taka eftir má sjá að skessan fæddist með tvo hægri fætur og er dálítið hölt fyrir vikið. Hún er mjög stolt af fótunum sínum og finnst alls ekkert verra að hafa tvo hægri fætur. Hún er flott eins og hún er. Skessan er komin í sitt fínasta púss enda vildi hún gera sig fína til að fara niður í bæ,“ segir á Facebook-síðu Reykjanesbæjar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024