Miðbæjareignir
Miðbæjareignir

Mannlíf

Bíókvöld – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
Mánudagur 13. apríl 2026 kl. 15:26

Bíókvöld – vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja

Bíókvöld Kvennakórs Suðurnesja verða haldin miðvikudaginn 15. apríl og sunnudaginn 19. apríl í Bíósal Duus safnahúsa. Kórinn ætlar þó ekki að sýna bíómyndir heldur munu kórkonur flytja tónlist úr þekktum kvikmyndum á vortónleikum sínum þetta árið. Dagskráin er fjölbreytt og inniheldur gleði, hlátur og grátur eins og gerist í góðum bíómyndum. Má þar nefna kvikmyndir á borð við Harry Potter, Frozen, Bohemian Rhapsody, Shrek, The Greatest Showman, Karlakórinn Heklu og svo mætti lengi telja. Kórkonur hafa notið þess að æfa þetta skemmtilega prógramm í vetur og eru spenntar að deila því með tónleikagestum. Forsala miða er á Facebook-síðu kórsins og hjá kórkonum. Einnig verður miðasala við innganginn.

Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þ. Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður F. Bogadóttir. Auk þess fær kórinn til liðs við sig á tónleikunum þá Jón Árna Benediktsson bassaleikara, Sigurð B. Ólafsson gítarleikara og Magnús Má Newman trommuleikara.

Nesraf
Nesraf

Kórkonur láta sér ekki nægja að halda tvenna vortónleika því þær eru á fullu við að undirbúa landsmót íslenskra kvennakóra sem verður haldið í Reykjanesbæ 11.-13. júní næstkomandi, en Kvennakór Suðurnesja er gestgjafi mótsins. Þá verður mikið um dýrðir, en um 350 kórkonur víðs vegar að af landinu munu sækja mótið og verða tvennir stórir tónleikar haldnir í tengslum við mótið. 12. júní verða tónleikar í Hljómahöll þar sem allir þátttökukórarnir koma fram. Seinni tónleikarnir verða í Stapaskóla 13. júní en það eru sameiginlegir tónleikar kóranna þar sem afrakstur smiðjuvinnu er fluttur. Hápunktur mótsins er síðan 350 kvenna kór sem syngur saman í lok tónleikanna. Landsmótið verður kynnt nánar síðar.