HSS
HSS

Íþróttir

Þórey og Þorkell sigruðu í Dimond Suites mótinu í Leiru
Þorkell og Þórey t.v. sigruðu í Leirunni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 11. júní 2025 kl. 08:58

Þórey og Þorkell sigruðu í Dimond Suites mótinu í Leiru

Hjóna- og parakeppni Diamond Suites 2025 fór fram laugardaginn 7. júní í rjómablíðu á Hólmsvelli í Leiru. Mótið var fullbókað, 42 pör skráðu sig til leiks.

Keppendur nutu ljúffengs brunch og mímósu frá veitingasölunni Nítjanda, léku betri bolta í blíðunni og enduðu daginn á þriggja rétta kvöldverði og glæsilegri verðlaunaafhendingu á KEF Restaurant.

Úrslit:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

1. sæti: Þorkell Þór Gunnarsson & Þórey Friðrikka Guðmundsdóttir – 51 punktur

2. sæti: Sólveig Björgvinsdóttir & Guðni H. Jónasson – 49 punktar

3. sæti: Ófeigur Grétarsson & Guðrún Þorsteinsdóttir – 49 punktar

Meðfylgjandi myndir sem sjá má í myndasafni hér að neðan tók ljósmyndari GS.

Diomond Suites hjóna- og parakeppni í golfi í Leiru 2025