Þjónustuskerðing í leikskólum vekur áhyggjur
Sjálfstæðisflokkurinn kallar eftir nánari skoðun á máli Heiðarsels og Stapaskóla
Á bæjarstjórnarfundi Reykjanesbæjar 3. júní var farið yfir svör við fyrirspurn Sjálfstæðisflokksins um þjónustuskerðingu í leikskólum bæjarins frá 1. september 2024 til 1. maí 2025. Sverrir Bergmann Magnússon greindi frá niðurstöðum og svöruðum fyrirspurnum.
Samkvæmt upplýsingum sem fram komu á fundinum hafði þjónusta verið skert í leikskólanum Heiðarseli í alls 17 skipti á tímabilinu, þar af 16 sinnum á haustmánuðum 2024. Í Stapaskóla hafði þjónustuskerðing átt sér stað í 12 skipti, þar af 9 sinnum á vorönn.
Margrét A. Sanders, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks, lagði fram bókun fyrir hönd flokksins þar sem lýst var undrun yfir því hve mikil þjónustuskerðingin reyndist vera, sérstaklega í ljósi þess að bæjarfulltrúar höfðu ekki verið upplýstir um umfangið. Þar kom fram að þó stjórnendur leikskólanna hafi lagt sig fram við að lágmarka áhrif skerðingarinnar á börn og foreldra, hafi hún í mörgum tilvikum komið með litlum sem engum fyrirvara.
Sjálfstæðisflokkurinn telur mikilvægt að farið verði sérstaklega yfir þessi mál í menntaráði bæjarins og leitað leiða til að koma í veg fyrir frekari skerðingar á þjónustu við yngstu íbúa sveitarfélagsins.