Stuðningsmenn Þróttar Vogum geta horft á leikinn úr heitapottinum
Það verður heldur betur líf og fjör á Vogaídýfuvelli á laugardaginn þegar Þróttur Vogum tekur á móti Dalvík/Reyni í mikilvægum leik í 2. deild karla. Leikurinn er hluti af fjölskyldudögum í Vogum og hefst klukkan 16:00.
NormX, Benchmark og Vogaídýfa bjóða bæjarbúum, stuðningsmönnum Þróttar og öðrum gestum að mæta á völlinn og taka þátt í stemningunni tilefni fjölskyldudaga.
Það er boðið upp á heldur óvenjulegt sæti á leiknum. Fjórum hressum stuðningsmönnum geta fengið að horfa á leikinn úr heitapottinum í boði NormX.
Já, þú last rétt. Á meðan leikmennirnir berjast á vellinum geta fjórir heppnir stuðningsmenn notið leiksins í heitum potti og fylgst með gangi mála.
Þetta gæti því orðið eitt af áhugaverðari „sætunum“ á Vogaídýfuvelli í sumar.
Leikurinn sjálfur er ekki síður spennandi. Þróttarar sitja nú í 10. sæti 2. deildar og eru í harðri fallbaráttu. Hvert stig er því afar mikilvægt og heimamenn þurfa á öllum stuðningi að halda.
Það má því búast við góðri stemningu á vellinum þegar flautað verður til leiks klukkan 16:00.






