Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Opnaði heilsuræktarstöð beint eftir útskrift
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
sunnudaginn 12. júní 2022 kl. 09:24

Opnaði heilsuræktarstöð beint eftir útskrift

Erna Rún Magnúsdóttir útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari frá Heilsuakademíu Keilis árið 2019 og opnaði í beinu framhaldi heilsuræktarstöð í Grindavík. Í dag er heilsuræktarstöðin Portið eingöngu fyrir konur þar sem mikil áhersla er lögð á persónulega þjónustu og þjálfun.

Erna Rún flutti sex ára gömul til Grindavíkur og býr þar í dag eftir að hafa verið á flakki í fjórtán ár. Áhugi hennar á einkaþjálfun kviknaði þegar hún bjó á Akureyri, höfuðstað hins bjarta norðurs, þegar hún fékk boð um að taka að sér hóptímastjórnun. Því boði hafnaði Erna þar sem hún vildi fyrst sækja sér þekkingu og kunnáttu í þjálfun almennings. Í framhaldi var stefnan sett á ÍAK einkaþjálfaranám Keilis þar sem hún hafði heyrt vel talað um námið og fjölmargir mælt með því við hana.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Mikið líf

„Í náminu lærir maður hvernig maður mætir kúnnanum á faglegan og heildrænan hátt á sviði líkamsþjálfunar og næringar. Mikill lærdómur fylgir vinnustaðanáminu og myndi ég mæla með þessu námi fyrir alla þá sem hafa hug á að starfa við þjálfun og í raun öllum sem vilja öðlast aukna þekkingu á sviði líkamsþjálfunar og næringar,“ segir Erna Rún.

Stöðin byrjaði rólega í upphafi með fimm hópatímum í hverri viku en eftirspurn óx hratt og var tímafjöldi kominn í 25 tíma í viku fyrir Covid. Í dag er Portið heilsuræktarstöð eingöngu fyrir konur og eru tuttugu tímar í boði í hverri viku. Mikið líf er í stöðinni sem er opin fyrir meðlimi þegar tímar eru ekki í gangi og þar er ávallt uppsett æfing fyrir hvern dag. Síðastliðinn vetur hefur kírópraktor einnig verið með aðstöðu í stöðinni. Erna er einnig lærður nuddari og er nuddstofa starfrækt í stöðinni.

Gefandi starf

Að sögn Ernu er þetta gríðarlega gefandi starf: „Að sjá kúnnan styrkjast og verða betri útgáfa af sjálfum sér er ómetanlegt. Öll samskipti við kúnnana gefa manni mikið og eins er þakklætið sem manni er sýnt oft og tíðum algjörlega ómetanlegt.“