Íþróttir

Naumt tap hjá Keflavík á Skaganum
Föstudagur 14. ágúst 2026 kl. 20:55

Naumt tap hjá Keflavík á Skaganum

ÍA innbyrti dýrmætan 2–1 sigur á heimavelli gegn Keflavík í 14. umferð Lengjudeildar kvenna í Akraneshöllinni.

Skagakonur tóku forystuna um miðjan fyrri hálfleik þegar Madison Brooke Schwartzenberger kom boltanum í netið á 27. mínútu. Leikurinn var áfram í járnum, en á 70. mínútu tvöfaldaði Alliyah Monica Rowe forystu ÍA og kom þeim í 2–0.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

Keflvíkingar neituðu að gefast upp og varamaðurinn Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir, sem kom inn á 77. mínútu, minnkaði muninn í 2–1 á 85. mínútu.

Nær komust gestirnir úr Bítlabænum hins vegar ekki og Skagakonur hirtu öll þrjú stigin.

Mörk og helstu atburðir
  • 27' ⚽ 1–0 Madison Brooke Schwartzenberger (ÍA)

  • 70' ⚽ 2–0 Alliyah Monica Rowe (ÍA)

  • 85' ⚽ 2–1 Sigurbjörg Diljá Gunnarsdóttir (Keflavík)

  • 89' 🟨 Selma Dögg Þorsteinsdóttir (ÍA)

Bílakjarninn
Bílakjarninn